Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2012, Síða 72

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2012, Síða 72
72 um aldarinnar. Útgefendur voru, auk Sigurðar, Ágúst H. Bjarnason (1875– 1952), brautryðjandi á sviði íslenskrar sálfræði og prófessor í þeirri grein við Háskóla Íslands, Árni Pálsson (1897–1970), ritstjóri Skírnis, Ásgeir Ásgeirsson (1894–1972), þingmaður Framsóknarflokksins og síðar forseti Íslands, Guðmundur Finnbogason (1873–1944), landsbókavörður, fyrrum prófessor í hagnýtri sálfræði við Háskóla Íslands, heimspekingur og ritstjóri Skírnis með hléum frá 1905 til 1943, Jón Sigurðsson (1886–1957), skrif- stofustjóri Alþingis og þýðandi, Ólafur Lárusson (1885–1961), prófessor í lögum við Háskóla Íslands, og Páll Ísólfsson (1893–1974) tónskáld. Fyrsta greinin í Vöku, „Sjálfstæði Íslands“ eftir Ágúst H. Bjarnason, er eins konar stefnuyfirlýsing. Af henni má ætla að Vökumenn líti á sig sem pólitíska arftaka Jóns Sigurðssonar (1811–1879) forseta en í byrjun henn- ar er vitnað ítarlega í grein hans, „Hugvekju til Íslendinga“, sem birtist í Félagsritunum 1848 og hún sögð „langmerkasta og afdrifaríkasta stjórn- málaritgjörðin, er samin hefir verið á íslenzka tungu, enda kom hún oss Íslendingum í fullan skilning um afstöðu vora til Dana og hefir afmarkað stjórnmálaferil vorn gagnvart þeim allt til þessa og jafnvel lengra fram“.61 Stefnan er að „sýna heiminum og sanna“ fyrir árið 1962 „að vér höfum ekki einungis verið þess megnugir að vinna allt það aftur, sem vér misstum 1262 og 1662, heldur hitt, sem er miklu meira virði og vænlegra til fram- búðar, að vér líka séum orðnir fjárhagslega sjálfstæð þjóð í sjálfstæðu landi, sem sé ekki upp á neitt eða neina komin“.62 Ætlun tímaritsins var að vekja þjóðina til vitundar um málstað sinn en það átti að berast inn á hvert heim- ili landsins enda er undirtitill þess Tímarit handa Íslendingum. Réttum aldarfjórðungi síðar var tímaritið Vaki. Tímarit um menn- ingarmál stofnað af fjórum ungum mönnum, Þorkeli Grímssyni (1929– 2010), fornleifafræðingi, en hann var jafnframt ábyrgðarmaður, Wolfgang Edelstein (f. 1929), sem um þetta leyti stundaði bókmenntanám í París en sneri sér seinna að félags- og kennslufræði, Þorvarði Helgasyni (f. 1930), rithöfundi, og Herði Ágústssyni (1922–2005), myndlistarmanni. Þrír hinir fyrstnefndu voru liðlega tvítugir en Hörður stóð á þrítugu, nýkominn heim úr myndlistarnámi í París. Samsetning hópsins er allt önnur en hjá Vökumönnum. Hann er sprottinn úr grasrótinni en Nordal og félagar voru allir gildir limir á stofni íslensks menningarlífs. Eigi að síður tengir titillinn ritið við Vöku. Hann kann að gefa til kynna að fjórmenningarnir 61 Ágúst Bjarnason, „Sjálfstæði Íslands“, Vaka 1/1927, bls. 1–18, hér bls. 1. 62 Sama heimild, bls. 17. ÞRöStuR HelGASoN
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170
Síða 171
Síða 172
Síða 173
Síða 174
Síða 175
Síða 176
Síða 177
Síða 178
Síða 179
Síða 180
Síða 181
Síða 182
Síða 183
Síða 184
Síða 185
Síða 186

x

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar
https://timarit.is/publication/1098

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.