Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2012, Side 100

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2012, Side 100
100 ingu.25 Er það miður enda augljóslega mikilvægt að greina nákvæmlega mismunandi merkingar og notkunarmöguleika allra þeirra hugtaka sem koma við sögu og geta túlkað tilgangsorsakir. Heimspekistefnur sem falla undir aðra meginflokka heimspeki samtímans hafa verið litlu öflugri en rökgreiningarheimspekin þegar kemur að markhyggju. Svo virðist sem tilgangsorsakir eigi sér ekki fremur málsvara í hefð meginlandsheimspek- innar en meðal rökgreiningarheimspekinga.26 Greinarmunurinn á tveimur helstu gerðum tilgangs er fyrsta viðfangs- efni þess sem tekur sér fyrir hendur að koma böndum á markhyggju. Annars vegar er hinn augljósi tilgangur: þegar hlutur, atvik eða eiginleiki þjónar ákveðnu hlutverki. Nærtækasta líkingin væri við gangverk. Þessi merking „tilgangs“ eða „tilgangsorsaka“ er sú sem vísindamenn sautjándu aldar, sem nefndir voru hér að ofan, gripu til.27 Enda fellur hún ágætlega að þeirri kenningu sem var heimspeki nýaldar og hefur verið kölluð vél- hyggja.28 Það er því varla hægt að tala um að þeir hafi endurskilgreint 25 Það skal þó viðurkennast að það er þreytandi og einfeldningslegur leikur að saka rökgreiningarheimspeki um að vera áhugalausa um þetta eða hitt; kunnasta dæmið er væntanlega meint áhugaleysi rökgreiningarheimspekinga á sögu heimspekinnar. Yfirleitt má finna ákaflega markverðar undantekningar. Það sama á við í þessu tilfelli. Tvö nýleg ritgerðasöfn geyma til dæmis greinar sem flokkast væntanlega undir rökgreiningarheimspeki, sjá Purposiveness. Teleology between Nature and Mind, ritstj. L. Illetterati og F. Michelini, Frankfurt-Hausenstamm: Ontos Verlag, 2008, og Functions. New Essays in the Philosophy of Psychology and Biology, ritstj. A. Ariew, R. Cummins og M. Perlman, Oxford: Oxford University Press, 2009. 26 Viðhorf í meginlandsheimspeki litast öðru fremur af afstöðu til heimspeki Hegels. Margir taka afstöðu gegn þeirri róttæku markhyggju sem þróaðist á fyrri hluta nítj- ándu aldar og með and-markhyggju Nietzsches. Foucault er til dæmis höfundur sem telur að gagnrýni lífvísinda á markhyggju megi færa inn á svið mannvísinda. 27 Margret Osler hefur ritað nokkuð um meint hvarf tilgangsorsaka í verkum breskra náttúruvísindamanna á sautjándu öld, sjá t.d. grein hennar „From Immanent Causes to Nature as Artifice: The Reinterpretation of Final Causes in Seventeenth- Century Natural Philosophy“, The Monist 3/1996, bls. 388–407. 28 „Vélhyggja“ er hugtak sem þarf að fara varlega með í umfjöllun um heimspeki og vísindi sautjándu aldar. Þeir heimspekingar sem teljast hafa fylgt vélhyggju að mál- um gerðu það ekki því þeir sáu náttúruna fyrir sér sem einhvers konar gangverk þar sem tannhjól hreyfðu við öðrum tannhjólum. Vélhyggjan snerist um útskýringar, þar sem allt í náttúrunni var aðeins útskýrt sem mælanlegar efnisagnir og mælanleg hreyfing þeirra. Samsettar verur höfðu aðeins vísindalegt gildi hvað varðaði stærð þeirra, en heild þeirra (þ.e.a.s. sú staðreynd að hlutar þeirra tengdust) hafði ekkert gildi í sjálfri sér, en það var höfuðatriði hjá Aristótelesi. Fáir náttúruspekingar á sautjándu öld mótmæltu því að stærð og lögun væru frumeiginleikar í skýringum, en nokkrir, þar á meðal Leibniz, mótmæltu því að hreyfing (og þar með breytingar) yrði aðeins útskýrð með vísun til stefnulauss rúmtaks. HeNRy AlexANdeR HeNRySSoN
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186

x

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar
https://timarit.is/publication/1098

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.