Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2012, Page 121

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2012, Page 121
121 ná samruna og sáttum svo maður verði leystur undan fortíðinni og tekur þetta ferli oft á sig mynd þar sem það leitar að uppruna eða samastað.18 „Mér finnst ég hafa verið eins og klukka ...“ Þegar Páll yfirgefur Djúpafjörð eftir andlát ömmu sinnar og flytur til Reykjavíkur, tekur hann nokkra hluti með sér sem hann hefur fengið í arf: klukku sem amma hans hafði fengið frá kvenfélaginu þegar hún varð sjötug, kommóðu ömmu sinnar, myndir af móður sinni og ömmu og spor- öskjulagaða mynd sem móðir hans hafði saumað út. Þessir hlutir fylgja Páli í gegnum þríleikinn og mynda tengsl við fortíðina. Það sem vekur sérstaka athygli með tilliti til efnisins sem fengist er við hér, er að hlutirnir teljast allir til algengra myndhverfinga sem notaðar eru um minnið og því er full ástæða til að staldra aðeins við þá. Eins og hefur komið fram byrjar Páll eldri, sögumaður þríleiksins, end- urminningar sínar á því að líkja yngri gerð sjálfs sín við klukku ömmunnar og lýsir henni þannig: Hún sló öðruvísi en gamla klukkan, hljómurinn var skærari miklu og kaldari, en auk þess tifaði hún hraðara, líkt og hún þyrfti að halda í við fóthvatari tíma en við höfðum átt að venjast í kofanum okkar. (G 8) Alveg frá byrjun er því ljóst að tíminn á eftir að gegna mikilvægu hlutverki í verkinu. Hér er á ferð samanburður á ólíkum takti og tímum; nýr tími er yfirvofandi og hann er „kaldari“, „skærari“ og „fóthvatari“. Þessi nýi tími gerir það að verkum að Páll, sem er ennþá drengur, fer að finna fyrir óskiljanlegum kvíða, „annarlegum beyg“ (G 9), sem fylgir honum allan þríleikinn. Hálfum mánuði eftir að amma hans fær klukkuna stendur hún allt í einu, „eins og [henni] væri af dularfullum ástæðum fyrirmunað að þreyta kapphlaup við tímann“ (G 10). Jafnvel Jóakim Jónssyni, sem „leysti hvers manns vandræði“ á Djúpafirði, tekst ekki að koma henni aftur til að tifa (G 10–11). Af þessu sprettur sundurlyndi og tilfinningarót sem veldur flokkadráttum í þorpinu: „ófriðarblikan dökknaði jafnt og þétt“, og verða „hörð átök tveggja stórvelda í kvenfélaginu“ (G 23). Það þarf ekki minna en jarðskjálfta til að koma klukkunni aftur í gang. Kvenfélagsklukkuna, eins og hún er kölluð síðan, selur Páll seinna þegar hann er fluttur til Reykjavíkur til að geta keypt handa unnustu sinni 18 Annette Kuhn, „A Journey through Memory“, bls. 104–105. HRINGSÓL UM DULINN KJARNA
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186

x

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar
https://timarit.is/publication/1098

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.