Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2012, Qupperneq 135
135
hefur birt nokkur kvæði eftir hann verður sögumanni til dæmis að orði:
„Það var stríð úti í heimi, en Aron Eilífs naut barnslegrar og hjartnæmrar
gleði“ (G 195).
Í lok fyrsta bindis, þegar stríðið kemur loksins til Íslands í mynd her-
náms, skrifar sögumaður: „Enn í dag verður mér svo órótt innanbrjósts,
þegar ég reyni að rifja upp fyrir mér atburði þessa vormorguns 1940, að ég
get ekki sagt skipulega frá þeim“ (G 315). Í næstu tveimur bindum verður
Páll svo vitni að því hvernig það upphaflega áfall sem landsmennirnir urðu
fyrir með hernáminu breytist í hagsýnni afstöðu og einn á eftir öðrum falla
þeir fyrir þeirri freistingu að græða á hersetunni, þótt með mismunandi
hætti sé. Næstum því allar aukapersónurnar í þríleiknum hafa einhvers
konar viðskipti við herinn eða nýta sér ástandið á einn eða annan hátt, „éta
úr lófa herguðsins –“ (SH 215). Það ævarandi hlutleysi sem Ísland hafði
lýst yfir í mótmælum sínum gegn hernáminu varðveitist aðeins hjá örfáum
persónum, þar á meðal Páli. En jafnvel hlutleysi verður tvírætt í eðli sínu
þegar um styrjöld er að ræða, ekki síst frá sjónarmiði þeirra sem fengu ekki
að standa hjá, enda hefur í samhengi síðari heimsstyrjaldarinnar stundum
verið fjallað um „hjásetuheilkennið“ (e. the bystander syndrome).42 Eins og
Regula Ludi hefur lýst í sambandi við Sviss getur hlutleysi haft siðspillandi
áhrif: „a business-as-usual attitude hafði yfirhöndina. Þessi hugsunarháttur
gerði forkólfa í pólitík og viðskiptum ónæma á hinar siðferðilegu afleið-
ingar eigin gjörða.“43 Sektarkenndin er tákn þess að Páll gerir sér grein
fyrir þessari siðferðilegu vafasömu afstöðu hlutleysis sem er sjaldnast raun-
verulegt hlutleysi. Það sem er merkilegt er að þetta sjónarmið kemur enn
skýrar fram í persónu Steindórs sem er annars ekki þekktur fyrir réttsýni,
en hann beinir spjótum sínum sérstaklega að Páli:
Hvað heldur þú að þessi lúsbitna þjóð hafi rakað saman miklum
gróða í fyrra og í hittiðfyrra? Hvað heldur þú að margar miljónir
hafi safnazt fyrir í bönkunum síðan um áramót? Svo eru viðkvæmar
42 Wulf Kansteiner, „Losing the War, Winning the Memory Battle. The Legacy of
Nazism, World War II, and the Holocaust in the Federal Republic of Germany“,
The Politics of Memory in Postwar Europe, ritstj. Richard Ned Lebow, Wulf Kan-
steiner og Claudio Fogu, Durham/London: Duke University Press, 2006, bls.
111.
43 Regula Ludi, „What is so special about Switzerland? Wartime Memory as a
National Ideology in the Cold War Era“, The Politics of Memory in Postwar Europe,
ritstj. Richard Ned Lebow, Wulf Kansteiner og Claudio Fogu, Durham/London:
Duke University Press, 2006, bls. 237.
HRINGSÓL UM DULINN KJARNA