Skírnir

Volume

Skírnir - 01.01.1971, Page 178

Skírnir - 01.01.1971, Page 178
176 RITDÓMAR SKÍRNIK myndir Hjálmars um að hann væri launsonur séra Sigfúsar Jónssonar í Höfða. Skal hér ekki lagður á það dómur, hvort félags- eða sálfræðingum er akkur í þessum hugleiðingum, en innfæddum íslendingum opna þær fáar nýjar sýnir inn í kveðskap Hjálmars. Lokakafli ritgerðarinnar nefnist Das Ende (Lokin), og segir þar frá síðustu árum og andláti Hjálmars. Þar verður höf. illa á í messunni (bls. 420), er hann telur Hjálmar hafa ort erindin Daprast mér orð í dimmu nauða... (sjá Ritsafn útg. 1949-60, VI, 191) árið 1874, en þau eru í handriti, sem talið er skrifað af Ólafi syni hans, sem lézt 1866. Að lokum eru svo rækileg heim- ildaskrá, nokkur rithandarsýnishom Hjálmars, öll upp úr prentuðum bókum, ættartafla, þrjú kort, þar af tvö áður prentuð, og loks er gerð grein fyrir höf. Með ritgerðinni fylgir og í sérstöku hefti þýzk lausamálsþýðing allra tilvitn- ana í verk Hjálmars, sem teknar eru upp í hana. Hér hefur nú verið fundið að býsna mörgu varðandi þessa ritgerð og þó ekki vikið nema að litlum hluta þeirra staða, þar sem höf. liggur vel við högg- um. Til viðbótar verður þó að nefna það, að hinn textafræðilegi grundvöllur hans er allsendis ófullnægjandi. Höf. styðst við útgáfu Finns Sigmundssonar á verkum Hjálmars, sem að vísu er heildarsafn, en eigi að síður einungis lestrarútgáfa ætluð almennum lesendum og fjarri því að vera nægilega ná- kvæm og ýtarleg til að hana megi leggja óendurskoðaða til grundvallar vís- indalegri rannsókn á skáldskap Iljálmars. Að vísu má þó benda á, höf. til málsbóta, að ritgerð hans sé samin af út- lendingi á erlendu máli og því væntanlega ætluð útlendum lesendum. Má vera, að á þann hátt megi réttlæta eitthvað af öllum þeim býsnum af óskyldum fróðleik og endursögnum efnis úr íslenzkum bókum, sem í henni er að finna. En það breytir út af fyrir sig engu um það algjöra fræðilega stefnuleysi, sem í henni er ríkjandi. í ritgerð á borð við þessa mætti t. d. eiga von á einhverri tilraun til heildaryfirlits um yrkisefni Hjálmars og sömuleiðis einhvers konar heildarathugunum á stíl hans, bragarháttanotkun eða fyrirmyndum, en á engu slíku örlar í henni. Þvert á móti virðist hreint handahóf ráða því, hvaða verk hans eru þar tekin til meðferðar, og við það bætist svo hitt, að hún er reist á ótraustum heimildagrundvelli og ófullnægjandi þekkingarundirstöðu höfundarins sjálfs. En hvað sem öllu þessu líður, þá má þó ekki skilja þessi orð svo, að fram- tak höf. sé hér einskis metið. Það þarf vissulega bæði kjark og áræði til að velja sér viðfangsefni úr bókmenntum erlendrar þjóðar, og það reyndar ekki af lakari endanum, og með ritgerð sinni hefur höf. sýnt það áþreifanlega, að hann á til nóg af hvorutveggja. Ritgerðin er og unnin af geysimiklum dugnaði og áhuga og greinilega með virðingu fyrir viðfangsefninu. Það fer heldur ekki á milli mála, að höf. hefur viðað að sér verulegri þekkingu á ýmsum sviðum íslenzkra fræða, sem vonandi á eftir að koma þeim að notum síðar. Þess vegna er það ósk mín höf. til handa, að ritgerðin sé aðeins upphafið á haldbetri skrifum hans um íslenzkar bókmenntir - þar er af nógu að taka og nægilegt svigrúm fyrir nýja liðsmenn. Eysteinn Sigurðsson
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202
Page 203
Page 204
Page 205
Page 206
Page 207
Page 208
Page 209
Page 210
Page 211
Page 212
Page 213
Page 214
Page 215
Page 216
Page 217
Page 218
Page 219
Page 220
Page 221
Page 222
Page 223
Page 224
Page 225
Page 226
Page 227
Page 228

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.