Skírnir - 01.09.1995, Page 50
320
SIGURÐUR GYLFI MAGNÚSSON
SKÍRNIR
Heybirgðir færði Halldór nákvæmlega á hverjum degi og hey-
gjöf. Hann vissi því upp á tuggu hvað hann átti í húsum og hvað
hann gat sett á með nokkru öryggi á haustin í ljósi reynslu liðinna
ára. Halldór hélt einnig nákvæmar skýrslur yfir innistöðu kinda
ár hvert ásamt ýmsu öðru sem við kom skepnuhaldi. Enn eru
ótaldar færslur hans um öll viðskipti heimilisins og um verðlag á
algengum vörum. I ítarlegri skrá yfir efni sín, sem var endurnýjuð
ár hvert, taldi Halldór allt sem hann átti, þar á meðal fötin sem
hann stóð í: „3. nærskirtur, ein af þeim ný. 3. nærbuxur, allar
fornar. 3. itri buxur, einar nýlegar hinar fornar."23
í þessu sambandi verður að hafa í huga að ritstörf Halldórs
þjónuðu meðal annars þeim hagnýta tilgangi að vera staðfesting á
atburðum og viðskiptum. Hinn 4. júní 1892 kemur til dæmis eft-
irfarandi fram: „Babbi beiddi mig að skrifa til minnis fyrir sig að
hann hefur fengið til láns hjá: Jóni í Tröllatungu 27 merkur grjón
(með skjóðu) og Guðbjörg á sama bæ: 22 merkur grjón (með
poka) Hjá Byrni í Tungugröf 2 1/2 fjórðung korn. Daða á Gests-
stöðum 1. fjórðung af heilgrjónum [...].“ Þannig heldur Halldór
áfram að telja það sem faðir hans hafði fengið að láni hjá ná-
grönnunum en segir síðan: „Jeg set þetta hjer allt saman svo jeg
sje fljótari að finna það þegar til þarf að taka því einhvern tíma
kemur að skuldadögunum sem nátturlegt er. Það sjest á þessu að
ekki er gott að fá bjargræðið, eða mikið í einu, því margir sem
lána eru orðnir fát[ækir].“
Seinni efnisflokkurinn innihélt mælingar sem eingöngu voru
unnar til þess að drepa tímann og bar efnisval Halldórs oft vott
um verulegt hugmyndaflug. Árið 1895 gerði hann til dæmis lista
yfir alla bæi sem hann hafði komið á fram að þeim tíma. Hann
skráði ennfremur öll sendibréf sem hann hafði fengið og sent. Þá
tók hann saman hve margir sóttu hann heim og allar heimsóknir
sem hann og aðrir heimilismenn fóru í ár hvert. Hann gerði
einnig nákvæmt yfirlit yfir helstu uppskriftir sínar frá því að hann
fór að stunda þá iðju. Yfirlit sem náði til ársins 1895 sýnir að
23 Lbs 1857 8vo. Efnisskránni er skipt niður í sjö liði: Bækur, skriffæri, föt, hirsl-
ur, ýmislegt, kindur og skuldir.