Jón á Bægisá - 01.10.2009, Síða 56

Jón á Bægisá - 01.10.2009, Síða 56
HUn Agnarsdóttir og kemur þangað í dulargervi herra Brooks nokkurs (Herra Gil) og biður hann gegn borgun að gerast milliliður við að ná ástum frú Ford. FalstafF þykist heppinn þarna og þekkist boðið, þar sem hann er hvort eð er á leið- inni á stefnumót við frúna. Hann segir Brook, að ef honum mistakist að fleka konuna, þá geti hann sjálfur reynt að „gilja“ hana. Þegar Falstaff fer loks á fjörurnar við frú Ford á heimili þeirra hjóna, kemur Ford stormandi og ætlar aldeilis að taka konu sína í bólinu með feita riddaranum. Henni tekst með naumindum að forða Falstaff ofan í tágakörfu fullri af óhreinu taui og láta þjóna sína bera hana út úr húsinu. Falstaff er síðan sturtað úr körfunni í Tamesá ásamt þvottinum og er nær drukknaður. Hann lætur það þó ekki aftra sér frá því að gera aðra tilraun til að fara á stefnumót við frú Ford. Sagan endurtekur sig, Ford fer aftur í dulargervi Brooks og fær fréttirnir beint frá Falstaff um brjálaðan eig- inmanninn og illa meðferðina í þvottakörfunni. Þegar Ford ætlar síðan að standa Falstaff að verki í annað sinn, þá tekst konunum að klæða hann í kvenmannsföt af feitri frænku þernu frú Ford. Ford æðir beint í þvottakörfuna til að leita Falstaffs. Þegar hann er ekki þar að finna, fær hann ákaft bræðiskast og gengur í skrokk á Falstaff sem reynir að bjarga sér út úr húsi í gervi feitu frænkunnar. Blár og marinn harmar Falstaff örlög sín, en freistast þó í þriðja sinn til að hitta konurnar og nú um nótt í veiðigarðinum í Windsor, þar sem lokaþáttur verksins fer fram. Þá hafa kátu konurnar ljóstrað öllu upp og fengið eiginmennina í lið með sér til að niðurlægja Falstaff sem að lokum verður að athlægi allra þorpsbúa, þar sem hann mætir í gervi Herne the Hunter (Holti veiðimað- ur) með mikil horn á höfði' og bíður örlaga sinna. I þessum lokaþætti leiksins þar sem allar persónur leiksins eru samankomnar og klæðast grímubúningum hlýtur Falstaff makleg málagjöld af hálfu kvennanna kátu og eiginmanna þeirra og allir þræðir verksins koma saman. III Rislítið bókmenntaverk en góður farsi Mörgum gagnrýnendum Shakespeares hefur eldd mikið þótt til þessa leiks koma og telja leikritið með risminni verkum hans eins og Harold Bloom sem þykir ekki vitund varið í þennan hrærigraut eins og hann kallar verk- ið.; Honum er aðallega uppsigað við meðferðina á Falstaff, sem hann segir 1 Nánar verður fjallað um þýðingu hornanna í kaflanum „Þýðingarvandinn í Vindsór- konunum" s. 68 o.áfr. í þessari ritgerð. 2 Sjá Harold Bloom: Shakespeare. The ínvention ofThe Human. London: Fourth Estate Limited 1998. S. 315-318. 54 á fSayáá - Tímarit um þýðingar nr. 13 / 2009
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128

x

Jón á Bægisá

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jón á Bægisá
https://timarit.is/publication/1166

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.