Jón á Bægisá - 01.10.2009, Side 57

Jón á Bægisá - 01.10.2009, Side 57
Hvenu kdtar eru Vindsórkonur? vera fórnarlamb í sadómasókisma og gefur lítið fyrir aðrar túlkanir annarra fræðimanna á Falstaff. Hann nefnir í því sambandi skrif nokkurra fem- ínista, sem hafa haldið því fram að Shakespeare hafi óttast það að eldast og missa kyngetuna og því verið að refsa sjálfum sér fyrir með því að draga upp þessa niðurlægjandi mynd af Falstaff. Bloom heldur því fram að sá hetju-þrjótur Falstaff sem kynntur sé til leiks í Vindsórkonunum kdtu sé aðeins nafnlaus grímuklæddur svindlari í samanburði við hinn mikla Sir John Falstaff úr Hinriki fjórða. Það eina góða við leikinn sé að hann sýni okkur hversu góðir fyrstu gamanleikir hans eru, The Comedy ofErrors og Taming ofthe Shrew, í samanburði við þá gerviorku sem leysist úr læðingi þegar þessi plat-Falstaff er niðurlægður.1 2 Það má vel vera rétt hjá Bloom að bókmenntalegt gildi leiksins sé ekki upp á marga fiska, en sem farsi stendur leikurinn að mínu mati fyllilega fyrir sínu. En það þarf kannski sérstaka kímnigáfu til að njóta hans til fulls. Leiktextinn er meira og minna í óbundnu máli og byggir mikið á samtölum og orðaleikjum. Einræður eru fáar og líkjast helst uppistandi þegar þær koma fyrir- eins og frægar kokkálsræður Franks Fords eru gott dæmi um (II.2. og III.2). Þá er texti og orðaforði Falstaffs einstaklega fynd- inn og jafnvel grátbroslegur á köflum, ekki síst þegar hann lýsir óförum sínum á heimili Fordhjónanna. Hvað sem mönnum kann að finnast um leikritið eru vinsældir þess engu að síður staðreynd og þær má ekki aðeins rekja til persónu Falstaffs, þótt hann sé með fyndnari manngerðum sem Shakespeare skapaði. Vin- sældirnar má ekki síður rekja til alþekktra steíja leiksins sem eiga við á öll- um tímum. Þannig eru Vindsórkonurnar kátu dæmigerður misskilnings- farsi sem byggir á sígildum steíjum um hjónaband og ástir, afbrýðisemi og hefnd. Uppbygging verksins og framvinda minna um margt á sjónvarps- sápur nútímans, þar sem uppskriftin er skrítnar persónur og smáborgara- legt líf, sem lýst er með galsa, hæðni og hæfilegum skammti af dónaskap og kynferðislegri tvíræðni. Það væri því forvitnilegt að kanna ástæður þess að leikritið hafi ekki enn ratað á svið hér á landi með atvinnuleikurum. Aðalhlutverk leiksins bjóða góðum leikurum upp á mikil tilþrif í leik, og þeir leikarar eru sann- arlega fyrir hendi í íslensku leikhúsi árið 2008. Vindsórkonurnar kátu verða að teljast með leikvænni gamanleikjum Shakespeares bæði hvað innihald og málfar varðar. Efni leiksins um ástir, afbrýði, hefnd og sættir eiga við á 1 Sjá Harold Bloom: Shakespeare. The Invention ofThe Human. London: Fourth Estate Limited. 1998. S. 315-318. 2 Eða „comic aria“ eins og G.R. Hibbard kallar það í „Introduction" s. 34 í Merry Wives ofWindsor. — AF OG FRA, EG KANN EKKI NOKKURT ERLENT TUNGUMAL 55
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Jón á Bægisá

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jón á Bægisá
https://timarit.is/publication/1166

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.