Jón á Bægisá - 01.10.2009, Síða 86

Jón á Bægisá - 01.10.2009, Síða 86
Ólafur Bjarni Halldórsson elskar ekki, þrátt fyrir hótanir um dauða eða útlegð úr samfélaginu með inngöngu í stranga klausturreglu. Lísander virðist ekki vera sóttur í efnivið eldri sagna. Hann virkar heil- steyptur sem elskhugi Hermíu þegar hann er ekki undir áhrifum yfirnátt- úrulegra töfra. Ráðagerð hans um flótta til að komast undan ströngum feðralögum Aþenu benda til ráðkænsku og rökvísrar hugsunar. Honum eru lögð í munn fleyg orð að „hrein ást geti aldrei streymt fram í lygnum straumi." (Frumtexti: The course of true love never did run smooth).1 Demetríus (algengt nafn meðal Forn-Grikkja og víðar), hinn ungi að- alsmaðurinn, kemur fram sem annar af tveimur biðlum Hermíu, en hafði áður verið í ástarsambandi við æskuvinkonu hennar Helenu. Hann vinnur hvorki traust né ástir Hermíu þrátt íyrir stuðning föður hennar. Egeifur faðir Hermíu kemur aðeins fram í upphafi leikritsins og virð- ist hafa það hlutverk að sýna fram á vald laganna þótt þau gangi í berhögg við tilfinningar. Hann gengur langt í því að þvinga fram hjónaband sem er honum þóknanlegt og virðist vera tilbúinn að beita dótturina harðri refs- ingu, hlýði hún ekki föðurvaldinu. Helena er fjórða af ungu elskendunum í Aþenu. Nafnið má rekja til hinnar fögru Helenu frá Tróju. Það er þó kaldhæðnislegt, því áralöng bar- átta var háð vegna Helenu frá Tróju en leikpersóna Shakespeares mátti þola höfnun þess sem hún þráði mest. Hún er viðkvæm og tilfinningarík og líður fyrir að hafa alist upp í skugga hinnar fjörlegu og aðlaðandi Hermíu. Hún berst örvæntingarfullri baráttu fyrir að endurheimta elskhuga sinn Demetríus, en má sæta harðleikinni höfnun hans eftir að hans metnaður verður að vinna ástir Hermíu. Mest verður niðurlæging Helenu er hún fylgir Demetríusi eftir í leit hans að Helenu í skógum Aþenu og hann reynir að hrista hana af sér. Hún svarar þá m.a. „ég er rakkinn þinn, já, því meir sem þú slærð mig, þeim mun meir skal ég flaðra að fótum þér.“2 Styrkur hennar birtist þó að lokum er hún hafnar ástleitni biðlana tveggja, sem þá eru undir áhrifum töfravökva álfa. Að lokum breytist sjálfsmynd hennar úr uppburðarlítilli ástsjúkri stúlku í sjálfsörugga konu. Væntanlega er Shakespeare að skapa í Helenu persónu sem varpar ljósi á erfiðleika og andstæður í ástum. Fílóstratus (e. Philostrate) veislumeistari Þeseifs hafði það hlutverk að velja skemmtiefni fyrir veislur hertogans. Á dögum Shakespeares hélt Eng- landsdrottning veislumeistara til að hafa eftirlit með öllu skemmtiefni í London. Áður en leikrit fór á fjalirnar varð handritið að fara til hans. Þegar 1 Helgi Hálfdanarson, bls. 9. Enskur texti: The Plays and Sonnets ofWilliam Shakespeare, bls. 353 2 Helgi Hálfdanarson, bls. 23 84 á . jSœ/yrhá - Tímarit um þýðingar nr. 13 / 2009
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128

x

Jón á Bægisá

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jón á Bægisá
https://timarit.is/publication/1166

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.