Jón á Bægisá - 01.10.2009, Page 119

Jón á Bægisá - 01.10.2009, Page 119
Þrjár örsögur Lírukassi Það er laugardagsmorgun. Ég rölti um á markaði og götum miðborg- ar Utrecht. Andi komandi áramóta er í loftinu. Temmilegur þó. Minni spenna þenur en á jólaföstu. Ég svíf sem aðra miðviku- og laugardaga um opinn markað stikandi töluna átta — í hvert skipti draga fætur mínir nýjan tölustaf. Skyndilega ber mig að bási sem selur peysur fyrir aðeins fimmtán gyllini. Mér finnst þær ekki flottar, en skiltið dregur mig til sín: Fimmtán gyllini\ Showtime\ Ég fæ mér pizzusneið. Alla miðviku- og laugardaga sömu tegund. Pizzusneið fyrir 1,85 gyllini. Fáið ykkur grænmetispizzu! Nú er ég komin að búðunum. Rölt mitt stikar rómverska tölustafi. Fyrst kem ég að Zeemans: Alltaf vörur á góðu verði! Ég er þar þegar ég heyri í lírukassanum. Ykkur sem eruð óvön líru- kassa vil ég segja að hann er forboði. Söngur hans segir dauði sé nærri eða afhjúpun. Ef fólkið aðeins leggði eyrun við! Og horfði á kvikmynd- ir. Góðu gæjarnir berjast við glæpónana undir hljóði lírukassans. Dæmi: Handan við hornið er góður drengur í sálarstríði. Hann hefur líf og dauða í hendi sér. Ekki að hann hafi óskað þess, öðru nær. Kalt stálið í vasa hans veitir ekkert öryggi, hann veit það nú. Léti hann til skarar skríða mundi honum mistakast - því hlustar hann á lírukassann. Músikin lætur hann fresta aðgerðum. Ég veit ekki hvort hann hefur séð The Crying Game eða Mónu Lísu, þar sem veruleikinn snerist á hvolf í sirkuslegum senum; er karlar reynast konur og konur lesbíur. Showtime\ Góði drengurinn. Hann er við það að verða einn af glæpónunum. Stráklingur spilar á lírukassann, karl stendur þar hjá og hristir álbolla í takt við músikina. Fólk líður hjá eins og þeir séu ósýnilegir. Ekki gott, ekki gott. Þau láta sér fátt um finnast. Heyra ekki söng lírukassans, láta sem hann sé síbylja. En lírukassinn hefur spádómsgáfu, hann rekur rytma dauðans og dregur þig inn í speglasalinn. Ég leita að smámynt og kasta í álbikarinn. Er fljót að hugsa: Góði maður, ekki láta mig vera góðan dreng, elcki láta mig vera góða stúlku. Ég vil ekki deyja í þessu þorpi, vil ekki að elskan mín heima, langt í burtu, sé á heróíni, vil ekkert vont í mínum heimi. Þakklátur karlinn hneigir sig. Hann afgreiðir mig í hasti. En ég heyrði viðvörunina og greiddi mitt gjald. Þar með skipti ég sköpum. Ný framvinda blasir nú við! 117 GF — NeIj YÐAR NAÐ, EG KANN LITIÐ I ENSKU
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Jón á Bægisá

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jón á Bægisá
https://timarit.is/publication/1166

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.