Þjóðmál - 01.12.2009, Side 72
70 Þjóðmál vetur 2009
Ef litið er yfir stjórnmálasögu síðustu ára kemur berlega í ljós, hver er fyrir ferðar
mestur þar . Það er Davíð Oddsson . Hvers
vegna skyldi það vera?
Í dag þvaðra margir um, að hann hafi verið
valdur að hruninu, sé gjörspilltur og veru
leika firrtur . En hvað segja staðreyndir? Árið
1989 var slæmt ástand í efnahagsmálum þjóð
arinnar eftir lélega stjórn í landsmálunum og
miklar skattahækkanir voru í tísku þá .
Davíð Oddsson borgarstjóri hækkaði ekki
útsvarið, en samt gekk rekstur borgarinnar
ágætlega . Til samanburðar má geta þess, að
borgars tjóri Rlistans hækkaði útsvar upp í
topp í góðæri og safnaði meiri skuldum en
áður hafði þekkst .
Þegar Davíð tók við forsætisráðherra
embætti kom strax í ljós vilji hans til að lækka
skatta . Sökum slakrar fjármálastjórnar fyrri
ára gat hann ekki strax lækkað skatta, en með
tíð og tíma tókst það . Hann barðist mjög á
móti spillingu í stjórnkerfinu, öllu sjóða
sukkinu sem viðgekkst í tíð vinstri manna og
fól Ríkisendurskoðun að gera úttekt á lán veit
ingum Byggðastofnunar . Hann færði þjóð ina
í áttina að frelsi og losaði okkur undan viðj um
embættismanna sem veittu styrki sam kvæmt
geðþóttaákvörðun og ekki þótti löstur að
veifa réttu flokksskírteini . Árið 2003 fjallaði
hann um það í ræðu, að ofurlaunastefna
væri stórskaðleg og benti m .a . á reynslu
Bandaríkjanna í því samhengi . Ýmislegt fleira
tíndi hann til, máli sínu til stuðnings .
En hvað sagði þjóðin? Hann þótti bara nei
kvæður og leiðinlegur .
Davíð varaði við því, að útlánastefna bank
anna væri glannaleg og gæti ógnað láns
hæfismati þjóðarinnar . Hann sagði þetta
ekki rétt fyrir hrunið 2008, heldur á ársfundi
Seðlabankans árið 2004 . Hafi hann verið
svona valdasjúkur, eins og sumir halda, hefði
hann þá ekki reynt að setja lög og koma í veg
fyrir þessi ósköp?
Sumir segja einnig að hann beiti sér hart
gegn þeim sem eru ósammála honum . Samt er
hægt að benda á ýmsa sem græddu mikið og
gekk vel, án þess að teljast í náðinni hjá Davíð
eins og það var kallað . Engin dæmi hef ég heyrt
staðfest, þess efnis, að hann hafi brugðið fæti
fyrir menn sem honum mislíkaði við . Eflaust
hefði hann getað það, en hann er of mikill
drengskaparmaður til að misnota vald sitt .
Þjóðin er svo fljót að gleyma . Árið 1989 kvartaði Vinnuveitendasambandið sár
lega yfir því, að háir skattar væru að sliga
atvinnu lífið . Eftir að Davíð komst til valda
voru skattarnir lækkaðir úr 45% í 33% og að
lokum niður í 18% . Það var mjög til hagsbóta
fyrir atvinnulífið .
Stjórnarandstaðan hélt fund með ríkis stjórn
Davíðs Oddssonar á fyrstu misserum þeirrar
Jón Ríkharðsson
Hugleiðingar um Davíð