Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2011, Page 121

Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2011, Page 121
grundvöllurinn í þrengri merkingu sem skelfur heldur allar vonir mannsins um að einhvers staðar sé óyggjandi sannleik að finna, þar með eru vísindin ekki undanskilin, heimspekin þaðan af síður. Prédikunin hvetur manninn til þess að horfa hugrakkur í djúp þess veruleika sem virðist vera með öllu án tilgangs og merkingar. Með því að horfast í augu við tómið á maðurinn stefnumót við guðdóminn, þann Guð sem er hulinn leynardómur, deus absconditus. Til þess að horfa í djúpið þarf hugrekki en fyrir hugrekkið verður djúpið uppspretta nýrrar vonar og lætur af sér leiða nýtt hugrekki og nýja trú. Höfundur er þeirrar skoðunar - og styðst þar einnig við sjónarmið annarra - að Tillich hafi með þessu viðhorfi sínu lagt grunn að póstmódernismanum (s. 12). Með því að horfa í djúpið opnast nýr veruleiki sem tengir miðaldir og nútímann þar sem maðurinn skynjar sig á mörkum djúprar merkingar og afgerandi merkingarleysis (s. 34-35). Þar er höfundur í góðu samfélagi kvenna eins og Júlíu Kristevu (s. 21) og Grace Jantzen (s. 18) sem spyr hvort hinn eiginlegi staður guðdómsins í nútímanum sé kannski einmitt þarna, í því hyldýpi sem er í senn ógnandi og skapandi. Höfúndur rekur þessa vitund Tillichs um hyldýpið reyndar til ljóðs sem hann orti 17 ára eftir að móðir hans lést úr krabbameini, þetta var eina ljóðið sem hann skrifaði um ævina. Það fjallar um leit að sjálfsskilningi og er þrungið af spurningum um merkingu lífsins, spurt er um tilvist mannsins, um líf hans og dauða (s. 1. Nmgr: Bin ich denn ich, wer sagt mir, dass ich binl/Wer sagt mir, was ich bin, was ich soll werden/ Was ist der Welten, was des Leben Sinni/Was ist das Sein und das Vergehen aufErden?/ O, Abgrund ohne Grund/ des Wahnsinns finstre Tiefie!/Ach dass ich nimmer Dich geschaut/und kindlich schliefe!) í ljóðinu eru hugtök sem áttu síðar eftir að skipta miklu í guðfræði Tillichs. I stuttum útdrætti í upphafi gerir höfundur grein fyrir meginþáttum doktorsritgerðarinnar. Þar segir að hugtakið hyldýpi hafi löngum verið mikið notað í heimspeki og guðfræði þar sem því sé ætlað að vísa til botn- leysis mannlegrar tilvistar, til spurninga mannsins um eigin tilvist sem vekja ótta hans og angist og loks hafi það verið notað um veruleika guðdómsins. í frumspeki og guðfræði hafi þessi hefð verið blómlegust í dulhyggjunni. Þar ber fyrst að nefna þýska dulhyggjumanninn Meister Eckhart, sem uppi var á 13. öld og hafði mikil áhrif á Martein Lúther og einnig Paul Tillich, en miðaldir þekktu einnig áhrifamiklar konur á sviði dulhyggjunnar. Þá er og nefndur til sögu dulhyggjumaðurinn Jakob Böhme, sem uppi var á gróskutímum píetismans á 17. öld. A þessum vettvangi var hyldýpið eitt sterkasta einkenni guðdómsins. I nútímanum telur höfundur þessa áherslu 119
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156

x

Ritröð Guðfræðistofnunar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritröð Guðfræðistofnunar
https://timarit.is/publication/1152

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.