Stjórnartíðindi fyrir Ísland: B-deild - 01.12.1879, Blaðsíða 58
1879
48
43
20. marz.
44
20. marz.
sem átt liefir sjer stað í A deild stjdrnartíðindanna 1878 bls. 6—51 skuldbindandi, og með
því að í hvorutveggja lögum þeim, er lijer rœðir um, er sjerstaklega sagt fyrir um, hvenær
þau skuli öðlast gildi, er þetta ekki bundið við neina auglýsingu í B deild stjórn-
artíðindanna um, að lögin sjeu út komin. Eins og tekið er fram í 2. gr. laga
24. ágúst 1877, er það ekki skilyrði fyrir því, að lög sjeu skuldbindandi, að þau verði
lesin upp á kirkjufundum eða hreppaskilaþingum. Samt vona jeg, að hlutaðeigandi sýslu-
menn hafi sjeð um, að áminnzt tvenn lög hafi verið send hreppstjórunum til birtingar á
nefndan hátt, en skyldi þetta liafa verið vanrœkt, ber að leggja fyrir sýslumennina að
gjöra tafarlaust nauðsynlegar ráðstafanir í þessu efni.
— Brjef landshöfðingja til amtmanmins yfir suður- og vesturumdœminu um
styrk til vegagjörða. — Með þóknanlegu brjefi yðar, herra amtmaður, frá 18.
þ. mán. meðtók jeg tillögur yðar um vegagjörðir þær, sem vinna ber á yfir-
standandi ári í suður- og vesturumdœminu, og læt jeg nú ekki dragast hjer með
að veita samþykki mitt til þess, að af þeim 15000 kr., sem veittar eru í fjárlögunum
fyrir yfirstandandi ár § 10, G, 6, sje varið eptirnefndum upphæðum til fjallvegagjörða í
suður- og vesturumdœminu.
1. til að fullgera veginn yfir Svínaliraun ................................. 3000 kr.
2. — endurbóta á veginum upp hina svo nefndu Kamba á Hellisheiði . . 1000 —
3. — framhalds vegagjörðinni á Holtavörðuheiði ....................... 1500 —
4. — framhalds vegabótinni á Kaldadalsveginum ....................... 1500 —
5. — framhalds vegagjörðinni á Laxárdalsheiði í Dalasýslu................... 400 —
6. — frambalds vegagjörðinni yfir Bröttubrekku ......................... 400 —
og vil jeg hjer með fela yður, herra amtmaður, á liendur að gjöra nauðsynlegar ráðstaf-
anir til þess, að framkvæmt verði fyrnefndum vegagjörðum, sem og til þess, að gjörð
verði á sínum tíma nauðsynleg reikningsskil fyrir áminnztu ije.
EMBÆTTASKIPUN 0. FL.
Ilinn 22. dag janúarmánaöar þóknaðist lians liátign konunginum allra mildilegast að vcita
sýslumanni í Skaptafellssýslu Arna Gíslasyni lausn í náð frá tjeðu embætti með árlegum eptirlaun-
um samkvæmt eptirlaunalögunum, allt frá 1. júlí þ. á. að telja.
29. janúar skipaði landsköfðingi kandídat þorstein Benidiktsson til að vera prest Lund-
ar og Fitja safnaða í Borgarfjarðar prófastsdœmi.
19. febrúar var lireppstjóri Ólafur Pálsson á Höfðabrekku settur til að gegna Kirkjubœj-
ar og pykkvabœjar klausturs umboði um stundar sakir.
19. marz var prcsturinn að póroddstað sira Stefán Jónsson skipaður prestur 1 Mývatns-
þingum í Suður-pingeyjar prófastsdoemi.
21. marz var præpositus konorarius sira Sveinn Níelsson R. D. skipaður prcstur að llallorms-
stað í Suðurmúla prófastsdœmi.
ALpINGISKOSNING.
Samkvæmt skýrslu klutaðeigandi amtmanns frá 3. marz var rand.pkilos. Björn Jónsson 1.
októbcr f. á. kosinn alþingismaður í Strandasýslu.
ÓVEITT EMBÆTTI.
er ráðgjafinn fyrir ísland klutast til um veitingu á.
Embættið sem sýslumaður í Skaptafellssýslu innan suðurumdœmis íslands verður laust 1. júlí
þ. á. Árslaun 3000 kr.
Sœki aðrir en íslendingar um embætti þetta, skulu þeir láta bónarbrjefum sínum fylgja til-
beyrilegt vottorð um kunnáttu í íslenzkri tungu samkv. konungsúrsk. 8. apríl 1844, 27. mal 1857 og
8. febr. 1863.
Auglýst 31. jan. 1879. Bónarbrjef eiga að vera lcomin 19. mai 1879.