Stjórnartíðindi fyrir Ísland: B-deild - 01.12.1879, Blaðsíða 75
Stjórnartíðindi 13 11.
65
1879
09
5. febr.
Fundur amtsráðsins í norður- og austurumdœminu 4. og 5. sept. 1878. (Framh.).
Amtsráðið samdi aðalskýrslu um liinn núverandi og fyrirhugaða leigumála á
jörðum þessum, að svo miklu leyti sem það gat eptir skýrslum þeim, som fyrir hendi
voru. En þar sem í Möðruvallaklaustursumboði og á fáeinum jörðum öðrum engin
uppástunga hafði verið gjörð um fyrirhugaðan leigumála á jörðunum, hvorki af um-
boðsmanni, hreppsnefnd nje sýslunefnd, sá amtsráðið sjor eigi fœrt að koma fram
með neina uppástungu.
Amtsráðið þóttist oigi geta borið um það með fullri vissu, hvort lcigumáli á um-
boðsjörðum væri hærri, lægri eða líkur leigumála á öðrum jörðum, sem oru bœndaeign,
með því ráðið hafði enga talnaskýrslu um leigumála á öðrum jörðum cn umboðsjörð-
unum; þó var það ætlun amtsráðsins, að leigumálinn á umboðsjörðum væri, að
minnsta kosti sumstaðar vægari en á öðrum jörðum. En þar sem umboðsmaður
Möðruvallaklausturs segir í skýrslum sínum, að venjuleg landskuld af bœndajörðum
sje 5—6 sauðir gamlir af hverjum 10 hundruðum, þá þóttist amtsráðið mega stað-
liœfa, að svo há landskuld væri undantekning en engin almenn regla, en þótt jarðir
í Eyjafjarðarsýslu sjeu hærra leigðar en annarstaðar í amtinu.
Amtsráðið vildi leggja það til, að landshöfðingi sæi um, að hinn fyrirhugaði nýi
leigumáli kæmist á sem fyrst við ábúandaskipti, og að gjörð væri ráð3töfun til þess
að uppástungur um nýjan leigumála yrðu gjörðar af umboðsmanni Möðruvallaklaust-
urs. Ráðið fjellst á þá tillögu umboðsmanns Munkaþverárklausturs, að kúgildum yrði
fækkað á sumum jörðum í því umboði þannig, að þessi kúgildi yrðu seld við uppboð
fyrir reikning landssjóðsins.
Um jarðabœtur framkvæmdar og kostaðar af leiguliðum umboðsjarða lýsti amts-
ráðið yfir því áliti sínu, að það mál væri í sjálfu sjer mikið vandamál, þar eð það
áhrœrði beinlínis rjettindi og skyldur leiguliða gagnvart landeiganda, en málið ekki
skýrt til hlítar af umboðsmönnum, hreppsnefndum og sýslunefndum. I>óttist því
amtsráðið verða að leiða hjá sjer að gjöra um þetta efni nokkrar uppástungur.
Amtsráðið var því mótfallið að selja umboösjarðir til ábúðar á uppboðsþingi af sömu
ástœðum semallir umboðsmenn, hreppsncfndir og sýslunefndir hafa tokið fram. J>ar
sem sýslunefndirnar í Eyjafjarðarsýsluog Húnavatnssýslu höfðu hreift ummælum um
þjóðjarðasölu, þá áleit amtsráðið sjer það atriði óviðkomandi.
2. Amtsráðið veitti stúlkunni Önnu Árnadóttur 100 kr. af jafnaðarsjóði, sem styrk til
að læra ljósmóðurfrœði.
3. Var rœtt um laun Sveins búfrœðings. Hafði liann getið þess, að hann kynni að
óska að mega fara til Danmerkur í haust, og þótti ráðinu þá sanngjarnt, að hann
slæi af kaupi sínu. En með því ekki var fullráðið um þetta, var forseta falið að
ráða málinu til lykta.
Fumlaskýrslur amísráðanna.
B.
C.
Fundur amtsráðsins í norður- og auslurumdœminu 27. d. janúar — 5. febrúar 1879.
Fundurinn var haldinn á Akureyri af forseta ráðsins, amtmanni Christjánsson, með
amtsráðsmönnum Arnljóti presti Ólafssyni og Einari Ásmundssyni.
Ilinu 19. júní 1879.