Stjórnartíðindi fyrir Ísland: B-deild - 01.12.1879, Side 73
63
1879
vandamönnum lians til viðurværis og nauðsynja, og cru að eins þær tekjur undan- oy
teknar, sem fást á þann hátt, að maður eyðir höfuðstdl sínum eða tekur lán. Enn frem- 30- aPrfL
ur eru í 3. grein nefndra laga, að eins undanþegnar frá skatti þær árstekjur af jarðeign-
um, er samaniagðar nema ekki 50 kr. pegar þessa hvorstveggja er gætt, virðist vanta
heimild til, að undanþiggja hina áminnztu 2 gjaldþegna frá að greiða skatt af árstekjum
af eignum sínum.
Um leið ogjog skýri yður, herra sýslumaður, fráþessu, til þdknanlegrar leiðbein-
ingar og ráðstöfunar, vil jeg út af þeira öðrum spurningura, sem áminnzt brjef yðar inni-
heldur, tjá yður, aðjeg, eins og þegar er tilkynnt sýslumanninum íDalasýslu með brjeíi 3.
febrúar þ. á. (Stjórnartíð. B. 22), vorð að álíta það skyldu yíirskattanefndarinnar, að
endurskoða nákvæmlega skrár skattanefndanna, rannsaka það, sem í þeirn þykir dljóst eða
rángt, og eptir ástœðum lagfœra það. Með því ekki er nefnt fardaga ár í 6. gr. laga
14. desember 1877, verð jeg að álíta, að þar sje átt við almanaks árið, bæði með tilliti
til eignarskatts og atvinnuskatts.
— Brjef landshöfÖingja til amtmannaim yfir suður- og veatur umdœminu um hom- 68
öopatameðöl — Ráðgjafinn fyrir ísland hefir moð brjefi 20. marz þ. á. tjáð mjer, 2' maí'
að hinu konunglega heilbrigðisráði hafi verið sendur kassi sá, með homöopatiskum með-
ölum, tilheyrandi prestinum sira Jakobi Guðmundssyni, sem lagt var löghald á í Reykja-
vík 31. ágúst f. á. ásamt skýrslu frá landlækni viðvíkjandi kassa þessum; en að meðölin
hafi, þá er átti að rannsaka þau, reynzt svo úlþynnt að ómögulegt hafi verið að sjá, hvað
í þeim væri.
J>etta er hjer með tjáð yður, herra amtmaður, til þóknanlegrar leiðbeiningar og
birtingar fyrir hlutaðeigöndum.
Fundaskýrslnr amísráðanna.
A
Fundur amtsráðsins í norður- og austurumdœminu 2. og 3. dag júlimánaðar 1878. 09
Fundurinn var haldinn á Akureyri af forseta amtsráðsins, amtmanni Christjans-
son, með amtsráðsmönnum Arnljóti presti Ólafssyni og Einari Ásmundssyni.
Á næstliðnum vetri höfðu farið fram í sýslunefndum umdœmisins kosningar til
amtsráðsins í stað þeirra er úr því voru gengnir, amtsráðsmanns Jóns Sigurðssonar og
varaamtsráðsmanns J. P. Havsteins. Flest atkvæði haföi fengið Arnljótur prestur Ólafs-
son að Bægisá og þar næst Davíð prófastur Guðmundsson að Reistará.
Amtsráðið tók til umrœðu þau mál, ðr hjer eru talin.
1. Forseti lagði fram landshöfðingjabrjef 13. okt. f. á. ásamt brjefi frá formanni bún-
aðarfjelags suðuramtsins 12. s. m. og reikningi frá Sveini búfrœðingi Sveinssyni 9.
s. m. Landshöfðingja brjef þetta með fylgiskjölum hljóðaði um ferðakostnað Sveins
búfrœðings síðastliðið sumar norður í Eyjafjörð til að skoða Staðarbyggðarmýrar, að
upphæð 98 kr. 60 aura; í öðru lagi um 150 króna endurgjald frá norður- og
austurumdœminu til búnaðarfjelags suðuramtsins fyrir það, er Sveinn tafðist mánað-
artíma (frá 25. júlí til 25. ágúst) á þessari skoðunarferð frá störfum sínum í suður-
amtinu, og í þriðja lagi gjörði Sveinn kröfu til 23 kr. 33 aura, sem ógreiddra af