Stjórnartíðindi fyrir Ísland: B-deild - 01.12.1879, Side 79
69
1879
assyni í þingcyjarsýslu, þar scm hann býðst til að ferðast um næstkomanda sumar
og leiðbeina í jarðyrkju og þesskonar efnum, ef amtsráðið vilji sjá sjer fyrir sann-
gjarnri borgun. Amtsráðið vildi ganga að þessu boði þannig, að Páll ferðist um
næsta sumar í fingeyjarsýslu, ef sýslunefndin, eða sýslunefndirnar þar í sýslu vilja
veita konum 200 kr. þóknun úr sýslusjóði, og mun amtsráðið þá sjá um, að Páll*
fái aðrar 200 kr. til viðbótar, svo bann hafi alls 400 kr. auk þess, er einstakir
menn, sem liann starfar hjá, kunna til að leggja.
40. Amtsráðið ákvað, að verja skyldi á komanda vori 200 kr. úr búnaðarsjóði amtsins
til að kaupa fyrir nokkur af verkfœrum þeim, sem á Skotlandi eru höfð tii að skera
fram mýrar í búfjárhögum. Fól ráðið forseta sínum að skrifa til Skotlands eptir
verkfœrunum með fyrstu póstskipsferð í vor, og fá þau send hingað á Akureyri með
fyrstu ferð Díönu. Er svo til ætlað, að verkfœrin verði síðan seld þoim, er vilja
nota þau, með sama verði sem þau eru keypt fyrir, svo búnaðarsjóðurinn eigi skerð-
ist við þetta meira en svarar íiutningskostnaði verkfœranna hingað til lands.
41. Að síðustu samþykkti amtsráðið að veita 50 kr. þóknun af jafnaðarsjóðnum fyrir
skriftir við amtsráðið árin 1877 og 1878.
Fleiri mál komu eigi fyrir á þessum fundi.
© tjópnapbrj ©f og- aPLg-lý singar*.
— Brjef landsliöfðingja til nmtmannsins yfir norður- og aust.urumdveminu um
styrk til gripasýninga. — Samkvæmt tillögum yðar, herra amtmaður, í
þóknanlegu brjefí frá 18. f. m. liefi jeg af fje því, sem getur um í 10. gr. C. 5 ijár-
laganna, veitt sýslunefndinni í Skagafjarðarsýslu og framfarafjelagi Eyfírðinga sem styrk
til þess að kalda gripasýningu, hinni fyrnefndu 200 kr., liinu síöar nefnda 100 kr.
Urn leið og jeg tjái yður þetta, sendi jeg yður lil þóknanlegrar ráðstafanar hina
síðar nefndu ávísun. jýar á móti hefir hin fyr nefnda ávísun verið send sýslunefndinni
í Skagafjarðarsýslu beinlínis.
— Brjef landsliufðingja til sýslumanwins i llúnavatnssýslu utn breytingu
á þingstað. — í þóknanlegu brjefi frá 21. f. m. hafið þjer, herra sýslumaður,
skýrt mjer frá því, að íbúar fremra Torfastaðahrepps, er enn þá ciga þingstað með í-
búum ytra Torfastaðahrepps að Svarðbœli, hafi óskað eptir því, að hreppurinn hefði
fundarstað sjer, er væri kaganlega settur fyrir sveitina, bæði fyrir þinghöld og almenna
fundi í sveitarþarfir, svo að fundir þessir gætu orðið sem fjölsóttastir og áhugi manna
á almennings-málefnum glœðst að því skapi. Með því að þjer ætlið, að mál þetta heyri
undir löggjafaratkvæði alþingis spyrjizt þjer fyrir, hvort ekki sje nauðsynlegt, að hlutað-
eigandi hreppsbúar sendi bœnarskrá til alþingis um það.
Af þessu tilefni vil jeg tjá yður til þóknanlegrar leiðbeiningar og birtingar fyrir
hlutaðeigandi hreppsbúum, að samkvæmt 18. gr. tilskipunar um sveitarstjórn 4. maí
1872 virðist ekki geta orðið spurning um, að þeir þurfi samþykkis frá öðrum en sýslu-
nefndinni til liinnar fyrirkuguðu ráðstöfunar, sbr. að öðru leyti brjcf mitt 26. maí 1876
(stjórnartíð. B. 61) 2. gr.
09
5. febr.
70
5. maf.
71
7. maí.