Stjórnartíðindi fyrir Ísland: B-deild - 01.12.1879, Page 81
71
1879
— Brjef stiptsyfirvaldanna til relctors hins JœrSa slcóla, um inntuknpróf 0. fl.
í þóknanlegu brjefi, dagsettu 7. þ. m., haíið þjer, herra rektor, farið þess á leit, að stipts-
yfirvöldin staðfesti eptirfylgjandi ákvarðanir, sem samþykidar voru á kennarafundi hins
lærða skóla 30. f. m.
1. Að ekki megi veita inntöku í skólann fleirum en 1G nýsveinum á ári.
2. Að nýsveinum verði gjört að skyldu að taka allir inntökuprófið í senn, annaðhvort
á vorin, áður skóla cr sagt upp, eða á haustin.
3. Að engi piltur megi sitja lengur en tvö ár í sama bekk, og sje honura sjálfvísað úr
skóla, geli liann eigi flutzt upp úr einhverjum bekk eptir tveggja ára veru í honum.
Vjer getum nú að vísu að mestu leyti fallizt á þessar uppástungur, en samt
þykir oss ísjárvert að setja það sem fasta reglu, að ekki megi veita inntöku í skólann
fleirum en 16 nýsveinum á ári, þar sem þetta gæti orðið til þess, að takmarka tölu
skólapilta meira en nauðsynin útheimtir, með því það engan veginn er víst, að á hverju
ári bjóðist 16 nýsveinar, en aptur getur verið, að annað árið verði nokkru fleiri en 16,
sem œskja inntöku í skólann, og kynni þá mega veita þcim skóla, án þess skólinn yrði
of fjölskipaður, ef tala nýsveinanna undanfarin ár hefði verið minni, eða á annan hátt
fækkað í skólanum. En eptir því sem nú er ástatt, virðist vera ástœða til, að selja
þessa ákvörðun fyrir næstkomandi skólaár, þó ef til vill með nokkurri tilhliðrun fyrir
þá sök, að inntökuprófið í þotta skipti verður að haldast tvisvar; en framvegis mætti
við lok livers skólaárs ákveða tölu þeirra nýsvoina, sem næsta haust yrðu teknir inn í
skólann, eptir því, sem á stæði í hvert skipti. Að nýsveinum verði eptirleiðis gjört að
skyldu, að taka allir inntökupróf í senn, vcrðum vjor að álíta hagfellt, og nauðsynlegt
til þess, að sjeð verði þegar fleiri beiðast inntöku í skólann en skóla geta fengið,
liverjir fyrir kunnáttu sakir sjou hœfastir til að fá inntöku, og skulum vjer í sarabandi
við þetta taka fram, að hinar Iágu einkunnir, er margir nýsveinar hafa hlotið við inn-
tökuprófin hin síðustu árin, og eptirfylgjandi framfaraleysi þeirra í 1. bekk skólans, virð-
ist benda á, að kröfurnar til þeirrar þekkingar og andlegs þroska, er nýsveinar eiga að
vera búnir að ná, til þess að skólinn geti veitt þeim viðtöku, hafi verið allt of linar.
Eptir kringumstœðunum álítum vjer hagfelldast, að inntökuprófið sje haldið á haustin,
rjett áður en skólinn er settur, svo sem 12.—14. septembor, eptir nákvæmari ákvörðun
rektors í hvert skipti; en þar eð það hefir tíðkast að undanförnu, að halda nýsveinapróf
bæði haust og vor, og breyting á þessu í þetta skipti naumast getur orðið almenningi
kunnug í tœkan tíma, álítum vjer, eins og ofan er á vikið, að ekki verði hjá því komizt,
að halda nýsveinapróf einnig nú í vor við lok skólalímans, þó ekki nema í eitt skipti,
einkum ef piltar úr fjarlægum lijeruðum kynnu að koma hingað og óska að fá sig prófaða,
en að öðru leyti ætti prófið að haldast í eitt skipti á komanda hausti. Enn fremur er-
um vjer samþykkir uppástungunni um, að hver sá piltur missi skólann, sem ekki vorður
álitinn hœfur til að fiytjast upp úr einhverjum bekk eptir tveggja ára veru í konum,
þannig að þetta sjo sett som almenn regla; en ef rektor skólans og kennarar álíta nauð-
synlegt að gjöra öldungis sjerstaka undantekningu frá þessari reglu sökum langvinnra
veikinda hlutaðeigandi skólapilts, þá ætti að bera slíkt undir úrskurð stiptsyfirvaldanna í
hverju einstöku tilfelli.
Að síðustu finnum vjer ástœðu til að gjöra þá ákvörðun, að engum skólapilti verði
framvegis leyft að sofa í skólanum sem óreglulegum heimasveini. Annmarkarnir við það,
að slíkt leyfi að undanförnu hefir verið veitt, hafa opt ogeinatt komið í ljós, ogástandið
"S 5
15. maf.