Stjórnartíðindi fyrir Ísland: B-deild - 01.12.1879, Page 101
91
1879
"Samþykkt
fyrir Ísaíjarðarsýslu og ísafjarðarkaupstað um fiskiveiðar á opnum skipura.
1. grein.
Enginn, sem stundar fiskiveiðar á opnum skipum,má á nokkru fiskimiði í ísa-
fjarðarsýslu, á tímabilinu frá vetnrnóttum til sumarmála, láta lóðir liggja í sjó nætur-
langt.
2. grein.
Enginn má á nokkru fiskimiði í ísafjarðarsýslu slœgja eða afliöfða nokkra fiski-
tegund á sjó úti, á tímabilinu frá 1. október til 1. apríl.
3. grein.
a. Á sama svæði má enginn á tímabilinu frá 1. desbr. til 1. maí árið eptir brúka
krækling til beitu.
b. Enginn má á tímabilinu frá 1. apríl til 15. maí sama ár brúka síld í beitu á fram-
anskrifuðu svæði á lóðir.
c. Sexmannaförum sjo leyfilegt að hafa að eins 200 faðma af innsettum hrognkelsa-
netum, en þriggja- og fjögramannaförum að eins 150 faðma.
4. grein,
a. í hverjum hrepp í ísafjarðarsýslu og í ísafjarðarkaupstað sje skipuð nefnd þriggja
rnanna; kýs hrcppsnefndin eða bœjarstjórnin einn þeirra úr sínum llokki, og skal
hann vera oddviti nefndarinnar; en hinir tveir skulu vera formenn, og gengstodd-
vitinn fyrir því, að formenn þeir, er uppsátur hafa í hreppnum, sjálfir kjósi þá úr
sínum flokki í byrjun hverrar vertíðar. Skal nefnd þessi hafa nák.væmar gætur á,
að öllu því, sem tokið er fram í samþykkt þessari, sje fyllilega hlýtt. Vérði ein-
livor u’ppvís að því, eða nefndinni þyki líklegt, að einhver hafi brotið á móti sam-
þykktinni, tilkynnir hún það hlutaðeigandi yfirvaldi.
b. Brjóti nokkur móti samþykkt þessari, nema líf liggi við, varðar það sektum frá 1 kr.
til 100 kr. eptir málavöxtum Fjórði hluti sektar ber uppljóstrarmanni, helmingur
gæ7,lunefndinni og fjórðungur hreppi þeim, sem brotið er framið í».
Samþykkt þessi staðfestist hjer með af undirskrifuðum amtmanni til að öðlast
gildi 1. dag októbermánaðar 1879, og kunngjörist hjer með öllum hlutaðeigöndum til
eptirbreytni.
íslands vesturamt, Keykjavík 16. d. ágústm. 1879.
89
16. ágúst
ISergur Thorberg.
S a in p y k k t 90
fyrir ísafjarðarsýslu og ísafjarðarkaupstað um hákarlaveiðar á opnum skipum. lo- aS’
Sýslunefndin í Isafjarðarsýslu hefir með lögákveðinni hlutdeihl af hálfu bœjar-
stjórnarinnar í ísafjarðarkanpstað samkvæmt lögum 14. desember 1877 um ýmisleg at-
riði, er snerta fiskiveiðar á opnum skipum, gjört eptirfylgjandi
»Samþykkt
fyrir ísafjarðarsýslu og ísafjarðarkaupstað um hákarlaveiðar á opnum skipum:
1. grein.
Enginn má á nokkru fiski- eða hákarlamiði í ísafjarðarsýslu á tímabilinu frá 1.
október til 15. febrúarmánaðar skera niður eða sleppa í sjóinn nokkru af hákarli.