Stjórnartíðindi fyrir Ísland: B-deild - 01.12.1879, Blaðsíða 110
1877
100
ÍO7 Af þessu tilefni vil jeg skírskota til laga frá 11. maí 1876 og ráðgjafabrjefs frá
2B. jiill 26. maí 1877 (stjdrnartíðindin B 86), sem lætur það álit í ljósi, að 2. gr. laga þessara
eigi ekki við nefndar ár, þar sera Tbomsen kaupmanni sje með hæztarjettardömi frá 16.
febrúar 1875 dœmd heimild til að þvergirða árnar, þrátt fyrir ákvörðun 56. kapítula
landsleigubálks Jónsbókar, sem lögin frá 11. maí 1876 í þessu tilliti eru byggð á, og í
annan stað mælast til þess, að þjer, berra amtmaður, skýrið Kristinn Magnússyni og þeim
fjelögum hans frá því, að hver maður, sem vill lifa í siðuðu fjelagi, og óskar sjálfur að
njóta þeirrar verndar, sem lög og dómar veita öllum landsmönnum, er skyldur, ef hann
hefur nokkuð að kæra gagnvart öðrum að fylgja fram rjetti sínum með lögum og dómi,
og ekki taka hann sjálfur eða sœkja með ofbeldi og yíirgangi.
Loksins vil jog skora á yður, herra amtmaður, að þjer að svo miklu leyti, sem
valdstjórninni ber að skipta sjer af þessu máli, gjörið som allra fyrst gangskör að því,
að dómstólarnir gjöri út um lagaheimild hinna áminnztu veiðivjela, sbr. brjef mitt frá
13. ágúst f. á. (stjórnartíð. B 127), eins og jeg býst við, að þjer hlutizt til um, að hinir
nefndu bœndur vorði fyrir þeirri ábyrgð gagnvart hinu opinbera, er þeir virðast sam-
kvæmt lögunum að hafa bakað sjer með hinu áminnzta hervirki.
IOS — Brjef landsllöfðingja til amtmannsins yfir suður og veslurumdœminu um styrk
28. júlí. til eflingar landbúnáði. — í brjofi frá 28. f. m. haíið þjer, herra amtmaður,
fyrir hönd amtsráðsins í vesturumdœminu lagt það til, að fjo því, sem í fjárlögunum er
veitt til jarðrœktar og eflingar sjáfarútvegi 1879 í vesturumdœminu, verði varið á þenn-
an hátt.
1, til launa handa Óláfi jafðyrkjumanni Bjarnarsyni fyrir að fcrðast um ýmsar
sýslur og leiðbeina mönnum í jarðabótarstörfum og landbúnaði 400 kr.
2, sem styrki handa Boga Helgasyni fráVogi til að Ijúka við nám sitt á búnað-
arskólanum á Stend í Noregi 100 lir.
3, til að koma á fót kcnnslu í búfrœði og jarðabótum hjá Torfa jarðyrkjumanni
Bjarnasyni 733 kr.
Með tilliti til hinnar síðustu uppástungu hafið þjer skýrt frá því, að amtsráðið
hafi samkvæmt ítarlegum tillögum Torfa, som býr á eignarjörð sinni Ólafsdal í Dalasýslu
fallizt á, að þar verði með opinberum styrk komið á fót kennslustofnun fyrir Vesturum-
dœmið, þar sem monn ættu kost á að nema öll hin hclztu atriði í jarðrœkt og búfrœði
eptir því, sem til hagar hjer á landi, og amtsráðið hafi veitt úr búnaðarsjóði vesturum-
dœmisins 67 kr. í viðbót við nefndar 733 kr., svo að útborgaðar verði á árinu 1879 800
kr. til undirbúnings kennslustofnuninni svo sem með húsastœkkun, verkfœrakaupum o. íl.
Pyrir því vil jeg tjá yður, herra amtmaður, til þóknanlegrar loiðbeiningar og
ráðstöfunar, að jeg fellst á þessa tillögu yðar og fylgir hjer með jarðabókarsjóðsávísun á
1233 kr.
PRESTAVÍGSLUlt.
Hinn 1 dag júnlmiin. var kandldat porsteinn Benediktsson vígður prestur að
Lundi og Fitjuin I Borgarfjarðar prófastsdœmi.
14. júní var kandídat Ólafur Ólafsson vigður prestur að Brjámslœk og Ilaga í Barða-
strandar prófastsdœmi.
31. ágúst var lcandídat Einar Jónsson vígður prestur að Felli og Ilöfða í Skagafjarðar
prófastsdœmi.