Stjórnartíðindi fyrir Ísland: B-deild - 01.12.1879, Qupperneq 163
Stjórnartíðindi B. 24.
153
1879
— fírjef landshöfðingja tilstiptsyfirvaldanna vm liinn lserða skóla. — Eptir að
hafa meðtekið álit stiptsyfirvaldanna í þóknanlegu brjefi frá í dag, viðvíkjandi ályktun
alþingis um skóiamál, vil jeg með tilliti til nokkurra atriða þessa máls tjá stiptsyíirvöld-
unum það, er nú segir til þóknanlegrar leiðbeiningar og ráðstöfunar; en um hin atriði
tjeðrar þingsályktunar áskil jeg mjer síðar að skipa fyrir.
1. Allar aðalvörur, sem keyptar eru til hins lærða skóla, einkum kol, steinolía
°g gluggagler, skulu eptirleiðis keyptar undirboðskaupum, og sje boðið tii kaupanna, svo
sem venja er til; fáist ekki á þennan hátt viðunandi boð, skal fela einhverjum kaup-
manni að kaupa þessar vörur erlendis, og senda þær til Keykjavíkur með sem vægustum
kostum. Með tilliti til kaupbœtis þess, er getur um í alþingisályktuninni, á upphæð reikn-
inga þeirra, er borgaðir hafa verið 1875—79, vil jeg skora á stiptsyfirvöldin að hlutast
til um, að hlutaðeigandi kaupmenn greiði hann, hafi hann verið áskilinn, þá er kaupin
fóru fram, eða sje heimild fyrir honum í bindandi kaupvcnju.
2. Að áskildu samþykki ráðgjafans, er stiptsyfirvöldunum á hendur falið, aðhaga
frá byrjun skólaárs þess, er uú fer í hönd, umsjóninni með hinum lærða skóla sam-
kvæmt 2. gr. þingsályktunarinnar og tiilögum stiptsyfirvaldanna í brjcfi frá í dag, og vil
jeg í þessu tilliti sjerstaklega taka fram þetta:
a, þ>að skal reynt að útvoga dyravörð mcð 1000 kr. ársiaunum, cr sje fœr um undir
yfirumsjón skóiastjóra að hafa á hendi alla umsjón með skólahúsinu og áhöidum skólans,
og framkvæmdir alls þess, sem að húsinu og áhöldunum lýtur. Vcrði ekki mögulegt að
fá áreiðanlegan mann til þess að gegna öllum þessum störfum, feilst jeg á tillögur stipts-
yfirvaldanna um, að Halldór yfirkennari Friðriksson, taki að sjer umsjón með skólahúsinu
og áhöldum þess, inukaup á því, sem skólinn þarfnast m. m., þannig að dyravörðurinn
verði skyldaður til að gegna störfum þoim í þessu tilliti, er hann leggur fyrir liann.
Til að koma á þessari tilhögun, má verja hinum áminnztu 1000 kr. að nokkru leyti til
þóknunar handa Halldóri yfirkennara Friðrikssyni, og að nokkru leyti til launa fyrir
dyravörðinn.
b. Hin eiginlega umsjón með skólapiltunum utan kennslustunda er undir yfirum-
sjón skólastjóra falin Birni kennara Ólsen, og hefir hann á hendi allar skriptir þær í
þarfir skólans, er umsjónarmaður skólans áður hefir gegnt. Jafnframt lionum tekur Jón
kennari Sveinsson1 þátt í þessari umsjón annaðhvort 2 stundir á hverjum degi, eða 2
daga í hverri viku eptir nánara samkomulagi. Aptur á móti fær Björn Ólsen kauplaus-
an bústað í herbergjum þeim, er umsjónarmaður skólans áður hefir notað, og, eins og
hann hefir haft, eldsneyti í 1 ofn og Ijósmat á 1 lampa í herbergi því, er kennari sá,
er umsjóninni gegnir, notar, og á það jafnframt að vera til afnota fyrir hina kennara
skólans, meðan á kennslunni stendur. Enn fremur takmarkast kennslustundir Bjarnar
Ólsens til 18 á hverri viku. J>angað til Jón Sveinsson kemur aptur úr ferð sinni, verð-
ur kennari sá, er settur mun hafa verið á hans kostnað til að gegna störfum hans, með
fram að taka þátt í umsjóninni á hinn áminnzta hátt.
3. Eins og stiptsyfirvöldin hafa sjálf í brjefi því frá 15. maí þ. á., þar sem þau
ákveða, að í ár skuli ekki veita fleirum en hjer um bil 16 lærisveinum inntöku í skólann,
tekið fram, að í þessu tilliti muni verða sýnd nokkur tilhliðrun, þannig vil jeg skora á
yfirstjórn skólans að veita í þetta skipti svo mörgum nýsveinum inntöku, sem rúmið frek-
ast leyfir.
1) 20. (lag septcmbcrmán. var Sigurðnr Sigurðsson settur kennari í stað Jóns Sveinssonar, sjá
bls. 124 að framan.
Hinn 31. tlesembcr 1879.
17»
11. sept.