Stjórnartíðindi fyrir Ísland: B-deild - 01.12.1879, Blaðsíða 170
1879
160
187
7. nov.
188
7. nóv.
að, og þess vegna lagt það til, að bending alþingis verði lckin til grcina. Á þessa til-
lögu álítur ráðgjafinn, að sjer bori því heldur að fallast, sera það myndi ekki vera heppi-
legt, eptir að ákveðið er, að skólaárið skuli byrja 1. október, að til taka tímann til inn-
tökuprófsins þannig, að þeir piltar, sem ekki stœðust prófið, yrðu að forðast heira í októ-
bermánuði, þó þeir væru langt að komnir. J>ó þess vegna sje ákveðið, að inntökuprófið
verði hjer eptir haldið að öllum jafnaði í júnímánuði,má einsog herra landshöfðinginn hefir
stungið upp á, gefa yfirstjórn skólans vald til að leyfa sem undantekning, ef fleiri kom-
ast fyrir í viðkomandi bekk, að taka lærisveina inn í hann í byrjun skólaársins, og verð-
ur, þegar svo kemur fyrir, að gefa út urn það nauðsynlega auglýsingu.
Að því, er að lyktum snertir tillögur alþingis um það, að nefnd verði sett til að
endurskoða og gjöra uppástungur um breytingar á skólareglugjörðinni frá 1877, hefir herra
landshöfðinginn orðið á sama máli og stiptsyfirvöldin um að láta það álit sitt í Ijósi, að
sem stendur sje ekki ástœða til að gjöra slíka ráðstöfun, og í því tilliti hafið þjer tekið
fram, að þeir annmarkar, sem nefnd sú, er sett var í neðri deild alþingis, hefir bent á,
sjeu svo vaxnir, að þeir yrðu leiðrjettir með einstökum takmörkuðum breytingum á reglu-
gjörð þeirri, sem nú gildir, ef reynsla, sem enn er ófengin, sannaði, að þeir væru til. Káð-
gjafinn verður einnig að sínu leyti að vera á þeirri skoðun, að ekki sje ástœða til nú
þegar, að gjöra almenna endurskoðun á skólareglngjörðinni, og að annmarkar þeir, sem
fyrgreind nefnd hefir bent á, sjeu alls ekki svo þýðingarmíklir, að þeirra vegna sje ástœða
til að hafa svo mikið fyrir, að setja niður 8 eða 9 manna nefnd til að rannsaka þetta
mál. Jpar eð samt sem áður hin umrœdda nefnd hefir tekið fram einstök og ákveðin at-
riði í reglugjörðinni, þar sem breytinga er beiðzt á, álítur ráðgjafinn rjcttast, að rektor
skólans sje gefið tœkifœri til að láta í Ijósi skoðun sína þar að lútandi, sem þó ætti lík-
lega ekki að vera fyrri, en hið yfirstandandi skólaár er á enda, og er ætlazt til, að hann,
áður en hann lætur í Ijósi álit sitt, rœði málið með kennurum skólans, vil jeg því hjor
með skora á herra landshöfðingjann, að gjöra þær þóknanlegar ráðstafanir, sem í þessu
tilliti eru nauðsynlegar.
— Brjef ráðgjafans fyrir Island til hmdshöföingja mn byggingu á alþing-
isliúsi. — í 4. gr.l. frumvarps þess til fjárlaga fyrir 1880 og 1881, sem alþingi hefir
samþykkt, var landsstjórninni veitt heimild til þess á fjárhagstímabilinu að verja af inn-
ritunarskírteinaupphæð viðlagasjóðsins 100,000 kr. til byggingar á húsi fyrir alþingi og söfn
landsins, og senduð þjer þareptir, herra landshöfðingi, með þóknanlegu brjefi frá 2. sept. þ.
á. hingað þingsályktun um mál þetta, samþykkta í báðum deildum alþingis, og getið þjei
þess um leið að uppdráttur sá til slíks húss, sem Klenlz trjesmiður hefir gjört, og ráð-
gjafinn með brjefi 26. maíþ. á. sent yður, haíi bæði virzt yður og þeim alþingismönnum, er
fœri hafi gefizt á að kynna sjer uppdráttinn, ónœgjandi, og hafið þjer því lagt það til, að
yður verði falið á hendur að velja hússtœðið, og ef til þess kemur, að ákveða skilmála
fyrir afhendingu hússtœðisins, að gjöra út um það eptir hverri fyrirmynd eigi að byggja,
og loks að sjá fyrir hinu nauðsynlega, að því er útvegun efnisins, framkvæmd sjálfs verks-
ins og umsjón með því snertir.
Sökum þessa og eptir að fjárlögin um árin 1880 og 1881 hafa komið út hinn 24.
f.m., er yður þjónustusamlega tjáð til þóknanlegrar leiðbeiningar, að tillögur yðar, þær er að
ofan segir, eru samþykktar, þannig að þjer, þegarkemur til framkvæmdar þess valds, sem
yður er veitt, hafið í ráðum með yður þá menn, scm fyrnefnt brjef yðar bendirá, og eru
Bergur amtmaður Thorberg, Árni landfógeti Thorsteinsson, dr. phil. Grímur Thomsen,
fórarinn prófastur Böðvarsson og Tryggvi kaupmaður Gunnarsson.