Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2016, Page 62

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2016, Page 62
61 Í ljósi þess að viðtakið er ofið inn í lífshætti ætti að vera skiljanlegt hvers vegna það er þungamiðja vísindalegrar þekkingar (lífshættir eru jú „hið gefna“, að mati Wittgensteins). Einnig ætti áhersla Wittgensteins á iðju og æfingu að skýra hvers vegna Kuhn talar eins og iðjan móti reynsl- una fremur en kenningar. Samkvæmt greiningu Wittgensteins er breytni miðlægur þáttur í málbeitingu og þar með í viðtökum eins og Kuhn sér þau. Wittgenstein leit svo á að hugtakið um mál væri það sem hann kall- aði „fjölskylduhugtak“. Það þýðir meðal annars að þótt við getum beitt hugtakinu rétt án nokkurrar fyrirhafnar er ekki hægt að finna bæði nauð- synleg og nægjanleg skilyrði fyrir beitingu þess. En það er ættarmót með þeim fyrirbærum sem fella má undir fjölskylduhugtök. Við getum skýrt það með því að hyggja að ættarmóti systkina: Jón hefur kannski sama háralit og Anna, systir hans. Hún kann að hafa söðulnef eins og Haraldur bróðir hennar sem aftur er bláeygur eins og Jón. Systkinin hafa engan sameiginlegan útlits-„nefnara“, heldur er um ræða knippi af útlits-eig- inleikum sem eru algengari hjá þessum systkinahópi en flestum, jafnvel öllum, öðrum slíkum hópum. Hið sama gildir um fjölskylduhugtökin en það gerir þau ekki óskýrari en önnur hugtök. Til eru reipi sem gerð eru úr mörgum minni reipum. Slíkt reipi getur verið firnasterkt þótt enginn rauður þráður sé í því, enginn þráður sem gengur gegnum allt reipið. Svipað gildir um málbeitingarhætti. Þeir verða ekki dregnir upp á einn seil, fremur en systkinin þrjú. Samt eru þeir í himnalagi rétt eins og reipið sterka. Málið samanstendur af laustengdum málleikjum sem skarast víða. Það er ættarmót með þeim.51 Þetta þýðir að málið með stórum staf er ekki til. Samt getum við beitt hugtakinu um mál án teljandi erfiðleika, rétt eins og reipinu haldgóða. Kuhn segir sjálfur að ýmis af hugtökunum sem varða rannsóknarvanda vísindanna séu fjölskylduhugtök.52 Þótt hann segi það ekki beinum orðum má draga þá ályktun að viðtak sé vísindalegur málleikur, vísindin með stórum staf séu ekki til, bara safn laustengdra viðtaka. Hann telur að vís- indin séu aðeins til í fleirtölu, þau séu flókin en ókerfisbundin formgerð. Þau séu ekki mónólítísk, þau lúti ekki einni, gefinni aðferð.53 Það fylgir sögunni að breski vísindaheimspekingurinn John Dupré hefur sett fram 51 Sama rit, bls. 31–32 (§65–§67). 52 Thomas Kuhn, The Structure of Scientific Revolutions, bls. 45, Thomas Kuhn, Vís- indabyltingar, bls. 137. 53 Thomas Kuhn, „The Trouble with the Historical Philosophy of Science“, bls. 119. ViðTöK OG VÍSiNDi
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184

x

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar
https://timarit.is/publication/1098

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.