Tímarit Máls og menningar - 01.09.2009, Side 34
34 TMM 2009 · 3
B ó k m e n n t a h á t í ð
efnið þó að persónan sem á að sjá um það veki takmarkaða samúð, jafnt þótt
hún sé jöðruð vegna litarháttar, holdafars og uppruna og þjáist af sjálfsmynd-
arkreppu sem leiðir að lokum til sjálfsmorðstilraunar. Þess vegna er það viss
léttir þegar höfundur víkur sögunni að ættingjum Óskars í Dóminíska lýð-
veldinu og fer með hana aftur í tímann, að valdatíma Rafaels Trujillos, harð-
svíraðs einræðisherra. Þar er kynnt mun bitastæðara efni og dreginn fram
bakgrunnur sem reynist vera í hróplegu ósamræmi við aðstæður Óskars.
Mikið er gert úr því í upphafi bókarinnar að á Dóminíkum hvíli viss bölvun
sem kölluð er fukú. Sagt er að hún hafi fyrst borist frá Afríku með öskrum
þrælanna, en eyjarskeggjar telja að koma Evrópubúa til Hispaniola, eyjarinnar
sem Dóminíska lýðveldið stendur á, hafi síðan leyst bölvunina úr læðingi.
Þessari bölvun er kennt um allt sem miður fer í lífi eyjarskeggja og skiptir þá
engu hvort fólk trúir á þessi hindurvitni eða ekki, því fukú-bölvunin trúir á
það, eins og segir í bókinni. Sögumaður telur alla hafa sína fukú-sögu að segja
og í hans tilfelli er það einmitt hin skamma ævi Óskars Wao. Hann viðurkenn-
ir að sín saga sé hvorki sú ógnvænlegasta né sú sársaukafyllsta en aftur á móti
vilji svo til að þessi fukú-saga hafi kverkatak á honum. Það eru sem sé persónu-
legar ástæður fyrir því að sagan er sögð, enda er sögumaður í tygjum við systur
Óskars um tíma og var líka herbergisfélagi hans í háskóla. Reyndar fær syst-
irin að segja söguna að hluta, en sögumennirnir eru í rauninni kapítuli út af
fyrir sig og kannski það sem helst steytir á í byggingu bókarinnar. Aðalsögu-
maðurinn, Yunior, nær því varla að verða virk persóna í bókinni og líkist einna
helst stöðluðum kvennabósa frá Suður-Ameríku. Frásagnarrödd hans ber keim
af því, hún er hálfkæringsleg og töffaraleg.
Eins og áður sagði gerist stór hluti bókarinnar á tímum einræðisherrans
Rafaels Trujillos sem komst til valda árið 1930 og ríkti þangað til hann var
myrtur í höfuðborginni Santo Domingo árið 1961. Þó að Trujillo hafi tekist að
koma ýmsu góðu til leiðar, m.a. að grynnka á skuldum þjóðarinnar, einkennd-
ist valdatími hans af óhæfuverkum. Að því er segir í neðanmálsgrein framar-
lega í bókinni var Trujillo líka hégómlegur og kvensamur. Hann gat sér m.a.
orð fyrir að nefna staði eftir sjálfum sér og fyrir að sofa hjá glæsilegum konum,
t.d. konum undirmanna sinna og það jafnvel á brúðkaupsnótt þeirra. Valdsvið
hans einskorðaðist því ekki við almannahagsmuni heldur teygði það sig inn í
einkalíf þegnanna. Kvensemi hans veldur því að afi Óskars Wao, læknirinn
Abelard, og öll hans fjölskylda, lendir í miklum hörmungum; afinn hafði neit-
að að koma með hina íðilfögru Jacquelyn dóttur sína á fund forsetans og er
skömmu síðar fangelsaður fyrir róg gegn honum. Belicia, yngsta dóttir hans,
sem fæðist tveimur mánuðum fyrir sviplegt andlát móður sinnar og verður
móðir Óskars, á um tíma í ástarsambandi við mann sem reynist vera mágur
Trujillos. Beliciu er misþyrmt hrottalega í kjölfarið sem verður til þess að hún
flyst til Bandaríkjanna. Þessi bók er sem sé að miklu leyti drifin af hvatalífinu
sem skilur okkur eftir með spurningar um tengsl stjórnarhátta og hvatalífs, já
og hvar hið svokallaða fukú komi inn í þá mynd. Er fukú afleiðing af innrás
hvíta mannsins í Nýja heiminn? Er það ringulreiðin og togstreitan sem hefur
TMM_3_2009.indd 34 8/21/09 11:45:29 AM