Tímarit Máls og menningar - 01.02.2015, Blaðsíða 29
M á n a s t e i n n , M u n c h o g e x p r e s S J Ó N i s m i n n
TMM 2015 · 1 29
en karlmaðurinn er með svart hár og í svörtum fötum. Sjón notar líka þessa
táknrænu og sjónrænu aðferð til að koma innihaldinu í sögunni til skila og
lýsa persónunum sínum. „Í brjósti Mána Steins ólmast svartir vængir“, á
meðan geislinn varpar andliti Musidoru á andlit Sólu Guðb- sem er „hvítara
en hvítt“ (bls. 13). Munch eins og Máni Steinn lýsir sjálfum sér í myndinni
„Sjálfsmynd með sígarettu“ í algjöru myrkri, svörtum. Konunni lýsir hann
með ljósinu sem skín frá henni eins og í myndinni „Madonna“. Í verkinu
„Tvær manneskjur (Þau einmana)“ er konan enn og aftur í hvítu en karl-
maðurinn í svörtu.
Það er augljós andstæða milli Mána Steins og Sólu Guðb-. Jafnvel seinni
nöfnin þeirra stangast á. Steinn er jarðbundinn og í föstu formi og guð
er himneskur og án forms. Munch tengir konur oft hafinu, en karlmenn
jörðinni. Það er líka áhugavert að máninn er algengt minni í listaverkum
Munchs og sumir hafa haldið því fram að máninn og mánaskinið á
vatninu séu kynjatákn.22 Í þessum skilningi verður enn rökréttara að Máni
Steinn skuli fá þetta nafn, en ekki Sóla Guðb-. Það er samt ekki sól að sjá í
listaverkum Munchs, nema í myndinni „Sólin“ þar sem hún er í brennidepli
og skín yfir hafinu og landinu.
Við nánari skoðun á nöfnum í skáldsögunni opnast nýjar dyr skilnings.
Skáldsagan sjálf heitir Mánasteinn og er orðaleikur með nafn aðal-
persónunnar. Mánasteinn er eðalsteinn sem lengi hefur verið notaður í
skartgripi og Rómverjar trúðu að mánasteinn væri skapaður úr frosnu
mánaskini.23 Hann er talinn vera kveneðalsteinn, þ.e.a.s. hann hefur mest
áhrif og lækningamátt á konur og það er talið best að nota hann undir
fullum mána.24 Tengsl Mána Steins við mánann eru sláandi, ekki síst þegar
ungi útlendingurinn kallar hann „Moonstone“ og seinna „Auburn moon,
harvest moon…“ (bls. 27). „Harvest moon“ er fullur máni og mánasteinn
er sérstaklega virkur undir fullu tungli. Í skáldamáli er „máni“ notaður í
kenningum um úlf, t.d. mánagarmur.25 Tengsl úlfs og fulls mána eru þekkt
í mörgum menningarheimum og í þessari skáldsögu má finna vel dulin
smáatriði sem gefa enn meiri innsýn í andstæðu og skyldleika milli Mána
Losun (1896)
Aðdráttarkraftur II (1895)