Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.2015, Page 36

Tímarit Máls og menningar - 01.02.2015, Page 36
A n a S t a n i c e v i c 36 TMM 2015 · 1 Í fyrstu skáldsögu Sjóns, Stálnótt (1987), brunar Johnny Triumph (Jón Sigur, Sigur- jón) upp af sjávarbotni og í annarri skáldsögu sinni, Engill, pípuhattur og jarðarber (1989) var hann skuggi aðalsöguhetjunnar. Í Augu þín sáu mig er nærvera höfundar ekki eins sýnileg, en hinsvegar er lögð áhersla á áðurnefnda þátttöku sögumanns eða söguhöfundar.33 Þetta einkenni finnum við líka í Mánasteini. Það er sláandi líking milli kynningar Johnny Triumph og Sólu Guðb-. Johnny Triumph kemur akandi upp af sjávarbotni „langur og grannur, […] [með] brún sólgleraugu […] klæddur svörtum jakkafötum og þvældri blúnduskyrtu […] og skórnir úr leðri, sígildir og támjóir.“34 Sóla Guðb- „birtist á klettabrúninni líkt og gyðja risin úr dýpstu hafdjúpum […] klædd svörtum leðursamfestingi […] með svarta hanska á höndum, kúptan hjálm á höfði, hlífðargleraugu og svartan trefil fyrir vitum“ (bls. 12). Í lok sögunnar þegar Máni Steinn fer aftur til Reykjavíkur og gengur framhjá húsi Sólu Guðb- „stendur gljábónað Triumph Model-Q“ utan í skúrveggnum (bls. 125). Sjón leikur sér aftur með nafn sitt og setur sig í samband við Sólu. Sjón hefur sagt að hann væri sjálfur líkastur Mána Steini35 og það kemur ekki á óvart, af því að Máni hefur fyrst og fremst mikinn áhuga á kvikmyndum eins og rithöfundurinn. En Sjón gefur nærveru sína líka í skyn með smáatriðum. Hann minnir á sig þegar hann lætur Mána Stein fá „röntgensjón“ til að sjá Sólu Guðb- eins og hún raunverulega er (bls. 13). Þetta er líka tilvísun í ljóðasafn Sjóns, Drengurinn með röntgenaugun (1986). Sjón fléttar nafn sitt inn í verkin og leikur sér með augna-minni sem er sígilt hjá honum eins og Úlfhildur hefur bent á.36 Ennfremur á Máni Steinn afmæli tuttugastaogþriðja apríl (bls. 95), en þetta er líka afmælisdagur Hall- dórs Laxness, afmælis- og dánardagur Williams Shakespeare, dánardagur Miguels de Cervantes og alþjóðlegur dagur bókarinnar. Einu sinni enn vísar Sjón, rithöfundur og skáld, til sín með tilvísun í aðra fræga rithöfunda og dag bókarinnar og um leið sýnir hann tengsl sín við Mána Stein. ExpresSJÓN- istinn í honum málar sig inn í verkin. 1.9 Lokaorð Samanburðinum við Edvard Munch, sem hér hefur verið lögð áhersla á, er ekki ætlað að gefa til kynna að Sjón hafi verið innblásinn af Munch eða haft málverkin hans fyrir framan sig á meðan hann skrifaði Mánastein. Það er reyndar ekki óhugsandi, ef tekið er tillit til þeirrar ítarlegu rannsóknarvinnu sem Sjón leggur á sig áður en hann skrifar skáldsögurnar sínar. Hvort það sé tilfellið hér eða ekki, skiptir litlu máli í samhengi ritgerðarinnar. Ég hef tekið dæmi af málverkum Munchs til að sýna hvernig skáldsagan mótast af listbrögðum expressjónískra málverka. Það vottar fyrir ópi og tilvistar- kvíða í gegnum alla söguna. Notkun skugga sem haga sér eins og sjálfstæðar persónur er greinileg, bæði í Mánasteini og málverkum Munchs. Það er
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.