Tímarit Máls og menningar - 01.02.2015, Page 73
„ H ú s i n e r u e i n s o g o p i n b ó k “
TMM 2015 · 1 73
35 Einnig má finna upplýsingar um Guðjón í eftirmælum um hann sem birtust í blöðum og
tímaritum að honum gengnum, og sömuleiðis eru stutt innskot í heimildamynd Ásgríms
Sverrissonar og Freys Þormóðssonar, Steinarnir tala þar sem fjölskylda hans og samstarfsmenn
minnast hans.
36 Jónas Jónsson og Benedikt Gröndal, Íslenzk bygging …, bls. 107.
37 Jónas Jónsson, Fegurð Lífsins, Reykjavík: Samband ungra framsóknarmanna, 1960, bls. 7.
38 Jónas Jónsson og Benedikt Gröndal, Íslenzk bygging …, bls. 107. Leturbreyting mín.
39 Jónas Jónsson og Benedikt Gröndal, Íslenzk bygging …, bls. 107. Hin þjóðlega heimilismenntun
mun hafa skipt Jónas miklu þar sem sagan segir að hann hafi að mestu verið sjálfmenntaður
fyrstu ár ævi sinnar. Hann mun víst hafa haft ímugust á Menntaskólanum í Reykjavík, þá
Latínuskólanum, því honum var meinuð innganga á þeim forsendum að hann væri of gamall.
40 B.B., „Góðar myndir af misjöfnum húsum“, Þjóðviljinn, 9. mars 1958, bls. 7.
41 Jónas Jónsson og Benedikt Gröndal, Íslenzk bygging …, bls. 107.
42 Joseph Campbell var bandarískur goðsögufræðingur sem lagði fram kenningu um ferðalag
hetjunnar. Kenningin var sú að skipta mætti nánast öllum goðsögum (og síðar hefur þessari
formúlu verið beitt á nánast allar þriggja þátta frásagnir með einu eða öðru móti), að forminu
til, í þrjá kafla sem samanstæðu af tólf hlutum í heildina. Hlutarnir tólf eru: 1) Venjulegur
heimur 2) ævintýrin kalla 3) neitun 4) hetjan hittir læriföður 5) farið yfir þröskuldinn 6) próf-
raunir 7) hellirinn 8) eldraunin 9) launin 10) ferðin heim 11) endurfæðingin 12) endurkoma með
elexírinn. Sjá: Campbell, Joseph, The Hero With a Thousand Faces, New York, Meridian, 1956.
43 Logi Geimgengill er íslensk þýðing á nafni einnar aðalhetju stjörnustríðskvikmynda (e. Star
Wars) bandaríska leikstjórans George Lucas, Luke Skywalker. Lucas mun hafa fært sér form-
gerðir goðsagna í nyt við gerð stjörnustríðsmynda sinna á 8. og 9. áratugnum.
44 Mér var t.d. bent á að Halldór Laxness væri líklegur kandídat.
45 Höfundur óþekktur, „Maðurinn sem mótaði stuðlaberg og fjallatinda í nútíma byggingar“,
Samvinnan, 1. desember 1957, bls. 8–11, hér bls. 10.
46 Hörður bendir einnig á að það var siður júgend og Art Nouveau manna að leita fyrirmynda í
náttúrunni. Hörður Ágústsson, Íslensk byggingararfleifð I, bls. 350–355.
47 Guðjón Samúelsson, „Íslensk húsagerð og skipulag bæja“, Tímarit V.F.Í.,1–3/1930, bls. 1–5, hér
bls. 1.
48 Á öðrum og þriðja áratug töldu ýmsir að leita ætti fyrirmynda í náttúrunni við teikningar
á byggingum. Einn þeirra var danskur arkitekt að nafni Alfred Jensen Raavad, sem skrifar
bók um íslenska byggingarlist, Islandsk Architektur, sem kemur út árið 1918. Þar beinir hann
sjónum að íslensku torfbæjunum sem hann telur eiga margt sameiginlegt með gotneskri bygg-
ingarhefð. Hann taldi byggingarsnið þeirra geta verið grundvöll til fyrirmynda með þjóðlegu
sniði „og í samræmi við landslagið“. Pétur H. Ármannsson, „Íslensk húsagerðarlist á 20. öld“,
Íslensk byggingarlist, Guðmundur Gunnarsson; Einar Örn Gunnarsson; Poulsen, Mogens
Brandt, Aarhus: Arkitektskolen i Aarhus, 1996, bls. 38–48, hér bls. 43. Þess má svo til gamans
geta að Alfred Raavad var bróðir Thors Jensen og kom þess vegna til Íslands.
49 Guðjón Samúelsson, „Íslensk húsagerð og skipulag bæja“, bls. 4.
50 Framfaragoðsögnin er nátengd nútímahyggjunni og gengur út á þá hugmynd að manninum og
samfélagi hans muni vegna betur ef hann sé frjáls og treysti á skynsemi í stað kennivalds. Hins
vegar fela hugmyndir nútímahyggjunnar ekki í sér hlutlægan mælikvarða á hvað framfarir eru
og því halda sumir, til að mynda heimspekingurinn Georg Henrik Von Wright, því fram að það
sé tálsýn að telja að framfarir, til að mynda á sviði vísinda og þekkingar, séu alltaf góðar í sjálfu
sér. Sjá: Von Wright, Georg Henrik, Framfaragoðsögnin, Reykjavík: Hið íslenzka bókmennta-
félag, 2003.
51 Sigríður Matthíasdóttir, Hinn sanni Íslendingur …, bls. 25.
52 Sigríður Matthíasdóttir, Hinn sanni Íslendingur …, bls. 25.
53 Herrafrásögn (e. master narrative) er altæk útskýring á sögulegri framvindu og gefur tiltekinni
allsherjar hugmynd samfélagslegt lögmæti. Innan hennar rúmast margar litlar sögur þar sem
mismundandi þekkingarsvið eru dregin í eina heild. Svo dæmi sé tekið má nefna að mannkyns-
sagan er herrafrásögn sem sameinar margar litlar frásagnir í eina stóra. Sjá: Malpas, Simon,
„Postmodern Knowledge“, Jean-François Lyotard, Routledge Critical Thinkers, London:
Routledge, 2003, bls. 18–20.