Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.2015, Page 130

Tímarit Máls og menningar - 01.02.2015, Page 130
D ó m a r u m b æ k u r 130 TMM 2015 · 1 ævintýrum. Frægastar eru prins- essurnar Þyrnirós og Mjallhvít sem röt- uðu inn í Kinder- und Hausmärchen Grimmsbræðra eftir langa vegferð um ævintýrasjóði margra menningarsamfé- laga. Báðum er þeim haldið sofandi og þær eru í raun milli lífs og dauða eða lif- andi dauðar. Þannig eru þær geymdar fyrir útvalda aðdáendur. Þetta minni birtist í mörgum myndum í heimsbók- menntunum. Bróðir Róbert segir í Tristrams sögu frá því að Tristram lætur gera styttu af Ísold eftir að hann hefur verið rekinn í útlegð hennar vegna. Þessa styttu geymir hann í afhýsi þar sem hann elskar hana og faðmar og það sama hafði Pygmalion myndhöggvari frá Kýpur áður gert að sögn Óvíds. Honum tókst að búa til höggmynd af svo fagurri konu að hann varð ástfang- inn af henni. Ást hans á myndinni var svo heit að Afródíta sá aumur á honum og gaf styttunni líf. Löngu seinna notaði Georg Bernhard Shaw tilbrigði við goð- söguna í frásögn sinni af blómasölu- stúlkunni Elizu Doolittle sem Henry Higgins breytti í hefðarkonu sem talaði yfirstéttarensku. Góð er lifandi feg- urðar dís en betri er þó í sögunum sú meðvitundarlausa því þá getur aðdá- andinn horft á hana, tilbeðið hana og gert hana að blæti vegna þess að hún er ómetanleg. Aðdáandi og handhafi stúlkunnar getur líka túlkað hana eins og honum sýnist og þetta gerir Dímon konungur í Tímakistunni. Hann notar tímann eins og verkfæri til að móta dóttur sína, reynslu hennar og þroska, hann ákveður hvaða tíma hún fær. Vald Tímakistan eftir Andra Snæ Magnason er ákaflega þétt ofinn texti, fullur af vís- unum, heimspeki og gagnrýni. Herkon- ungurinn og valdsmaðurinn Dímon ákveður í sorginni eftir dauða konu sinnar og ástinni á dótturinni að (mis) nota vald sitt til að koma í veg fyrir frekari þjáningar sínar og sinna. Hann setur af stað atburðarás sem er ætlað að grípa fram í gang náttúrunnar og gera uppreisn gegn lögmálum hennar. Það kann ekki góðri lukku að stýra. Fjöl- margar goðsögur fjalla um ólánið sem af því stafar ef menn gera sig seka um ofmetnað (gr. hybris) og raska jafnvægi náttúrunnar. Meira að segja guðirnir geta aðeins fiktað tímabundið við nátt- úrulögmálin, regluna verður alltaf að endurreisa. Í goðsögum er það heldur ekki bless- un heldur bölvun að lifa lengur en aðrir menn og skemmst að minnast aumingja Starkaðar sem klemmdist milli tveggja guða, Óðins og Þórs, sem lögðu á hann að lifa í 300 ár, lífi sem einkenndist af þversögnum, þjáningum og einmana- leika. Í ævintýrum og þjóðsögum er það heldur ekki gæfumerki að sjá það sem öðrum er hulið eða skilja dýramál. Það síðast nefnda gat verið mjög óþægilegt og væru sögupersónur heppnar var þessi eiginleiki tekinn frá þeim þegar þær voru búnar að leysa þrautirnar. Dímon misnotar vald sitt og gerir sig jafnan guðunum þegar hann stöðvar tíma Hrafntinnu, dóttur sinnar. Eins og æsirnir sem fengu jötun til að byggja borgarmúrinn umhverfis Ásgarð, fær hann yfirnáttúrulegar verur til að vinna fyrir sig hið óvinnandi verk og heitir þeim stórkostlegum launum í staðinn. Hann gengur síðan á bak orða sinna, breytir reglunum og lætur drepa dverg- ana. „Ertu að segja að konung skorti VIT?“ spyr Exel, aðalráðgjafi Dímons, Þórdísi fóstru Hrafntinnu. (94) Og hún svarar ekki. Engum leyfist að gagnrýna hann. Hann skortir ekki vit heldur sið- ferði og þar af leiðandi dómgreind. Svik hans eru „drottinssvik“. Upphaflega þýðir orðið svik gegn konunginum í tví-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.