Tímarit Máls og menningar - 01.10.2016, Page 19
É g v e r ð a l l t a f s v o h i s s a
TMM 2016 · 3 19
hvað heitir pabbi þinn, áttu systkini, hvað heita þau – ef þú kærir þig um
að svara því – hvar í röðinni ertu fædd og hvar ólstu upp?
Ég er fædd á Akranesi – Akranes er svar við þessu öllu – tuttugasta og
sjöunda ágúst árið 1973, fyrir hádegi, sem er sérstakt því ég vakna aldrei fyrr
en í hádeginu. Mamma mín heitir Guðmunda Ólafsdóttir og pabbi minn
heitir Þröstur Stefánsson, hann er frá Siglufirði en annars eru allir Akur-
nesingar í kringum mig. Mamma og pabbi búa enn í sama húsinu og ég á
enn svona „heim“. Systir mín heitir Alda og er fjórum árum eldri. Við heitum
eftir sitthvorri ömmunni.
Heitir Akranes-amma þín Sigurbjörg?
Nei, hún heitir Alda og er níutíuogþriggja ára og ótrúlega skondin. Siglu-
fjarðar-amma mín hét Sigurbjörg.
Viltu segja mér meira frá bernskustöðvum þínum?
Þetta er ysta húsið á þessum jaðri bæjarins og fyrir neðan húsið okkar lá
mói sem við lékum okkur í, í indjánaleikjum, fórum í fjöruna og klettana
sem við skírðum og skráðum. Þarna sér maður yfir Mýrarnar og Snæfells-
jökulinn eins og honum hafi verið stillt upp handa okkur að horfa á. Við
fórum á skauta á kampinum. Fyrir neðan móann stóð flugeldaverksmiðja
sem sprakk þegar ég var fimm ára. Það er stór atburður í minninu, gerðist
snemma morguns og feðgarnir í næsta húsi fórust, faðirinn rak verk-
smiðjuna. Krakkarnir í hverfinu léku sér lengi á eftir í rústunum en það
fannst mér skrýtið og gat ekki tekið þátt í leikjum þar. Það eru engin sjáanleg
ummerki um slysið núna. Að öðru leyti var æskan aðallega tónlistarskóli,
íþróttir og almenn kátína.
Lýsirðu kannski slysinu í ljóðinu Esjubraut?
Mokkajakkar
minna mig á slökkviliðið
en líka
glerbrot í djúsglasi
ókunnir menn
af himnum ofan
náttkjólar
í gættinni
þar til einhver leggur yfir mig
mokkajakka af mömmu
sprenginguna sjálfa man ég ekki
kannski hef ég líka gleymt
drengnum á flötinni