Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.10.2016, Blaðsíða 44

Tímarit Máls og menningar - 01.10.2016, Blaðsíða 44
S t e i n a r B r a g i 44 TMM 2016 · 3 ráðstefnu- og fundahalda, með eða án veitinga og hvenær sem er. Ég smeygði mér inn fyrir og lokaði á eftir mér. Í miðju herbergisins var langt, svartlakkað borð og eins og tíu, fimm- tán stólar umhverfis. Á veggnum í hinum endanum hékk upprúllað tjald til power-point eða bíósýninga, annars var ekkert sérstakt að sjá þarna inni nema fáeinar eftirprentanir af Kjarval. Efst á veggnum á hægri hönd voru mattir gluggar sem vissu út að Austurvelli. Einhvern tímann hafði ég heyrt að Eimreiðar-hópurinn – Davíð Odds, Styrmir Gunn, Hannes og Jón Steinar, frjálsu mennirnir – hittust þarna í hádeginu og ræddu hvernig best væri að bjarga landinu. Ég kíkti á dyrnar til að sjá hvort mætti læsa þeim að innanverðu en svo var ekki. Fyrr en varði hafði ég dregið niður um mig buxurnar og hugsaði um útúrglennta stelpuna frá Selfossi og feitar, dökkar geirvörturnar á henni, svo birtist Emma kærasta og var í sturtu með kvenkyns apanum úr Lifandi vísindum sem ég man ekki hvað hafði að gera með Darwin, múmían Lucy smurði vaselíni í rassgatið á sér og ég tróð mér á kaf í hana, sá geimskipið af CNN svífa yfir og stjörnurnar hverfa, ein af Kardashian-systrunum birtist skyndilega með hnén upp að eyrum og öskraði á mig að sprauta djúpt á kaf í sig, ég reið henni aftanfrá og togaði í hárið á henni. Ég fálmaði inn á mig eftir dollunni og lagði á borðið, tók hana svo aftur til mín og skrúfaði lokið af svo ég gæti sprautað beint ofan í dolluna, fikraði mig á meðan að hinum enda borðsins, þar sem væri vandræðalegast að standa ef einhverju af starfs- fólkinu dytti í hug að opna inn í salinn. Ég sneri mér í átt að dyrunum og togaði eins hratt og ég gat, reyndi að halda mig við stelpuna frá Selfossi – hún sveimaði um hausinn á mér en svo birtist páfastóllinn, þessi með holuna í setunni sem hann lét punginn síga niður um svo mætti sannreyna að hann væri karlmaður, því hvað mætti páfi vera annað en karlmaður? Eflaust hefði mér aldrei dottið þetta í hug nema af því að herbergið var fullt af stólum, eintómir stólar hvert sem ég leit og ég lokaði augunum. En karlinn settist þarna á stólinn sem honum var ætlaður, nýjasti páfinn – Francis, sá góði og mennski sem var ekki algjörlega mótfallinn konum, hommum eða skilnuðum, en þó mótfallinn því öllu, pungurinn á honum dinglaði niður úr stólnum, pungur sem aldrei hafði verið tæmdur í synd eða losta, bara af eintómri óheppni um miðja nótt í draumum sem djöfullinn sendi honum. Við hlið hans kraup enginn kardínáli heldur stelpan frá Selfossi, júgrin flóðu út um rauðan kjól kardínálanna og hún hafði hneppt niður um sig, hún lyfti brjóstunum sitt á hvað og sleikti á sér geirvörturnar meðan hún þreifaði um punginn á karlinum með hanskaklæddri hendi, pungurinn var þrútinn og fjólublár af hreyfingarleysi og páfinn stundi meðan hún gældi við hann. Þú ert karlmaður, sagði stelpan frá Selfossi og mjólk byrjaði að vella út um brjóstin á henni, hún fann að pungurinn var mjúkur eins og augnlokin á litlu barni og stelpan frá Selfossi sagði honum það, páfinn ruggaði sér í stólnum og umlaði eins og vanviti þangað til doðinn kom í útlimina, þeir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.