Tímarit Máls og menningar - 01.10.2016, Blaðsíða 27
É g v e r ð a l l t a f s v o h i s s a
TMM 2016 · 3 27
Hvað meturðu minnst í fari manneskju?
Yfirborðsmennsku eða tengslaleysi einhvern veginn.
Hverjir eru kostir þínir? Hvað meturðu mest í eigin fari?
Ég reyni yfirleitt að vanda mig. Og kannski bara orðheldni. Og ekki bein-
línis þyngsli heldur jarðbinding.
Afsakaðu frammígripið, ég veit um tvennt afþví ég sat einu sinni á fundi
með þér og Ingibjörgu Haraldsdóttur á Hótel Borg og þið eigið sameigin-
legt þetta: örlæti og kurteisi.
Nú, það er þá beint frá mínu fólki, mamma og amma yrðu mjög glaðar að
heyra ef það hefur heppnast hjá þeim, þær eru allavega þannig.
Hvað metur þú minnst í eigin fari?
Veit ekki hvort ég eigi að segja leti, heldur svona gauf. Eyða tímanum. Og
varkárnin getur stundum verið of mikil, svo athyglisbrestur í eldhúsi, sem ég
veit ekki hvort er ólæknandi en er óþolandi – allavega fyrir aðra. Svefnsýki.
Hvað finnst þér skemmtilegast að gera?
Vinna. En mér finnst líka skemmtilegt að finna fyrir náttúrunni og tala
við vini mína sem eru allir frábærir og hafa margir svo margt að segja, þess
vegna missir maður af mörgu ef maður er mikið einn, það er ekki hættulegt,
en maður fer á mis við þetta frábæra fólk. Mér finnst skemmtilegt að tala við
þig t.d. og mér fannst skemmtilegt að gera 1005.
Hver er hugmynd þín um (fullkomna) hamingju?
Gott það sé innan sviga, annars væri ekki hægt að svara þessu. Best að
nota orðalag sem ég sá nýlega: að sitja vel í sjálfum sér – sá þetta um daginn
á prenti og þetta segir svoldið mikið. Og þegar allt er í réttum skorðum í
kringum mann og maður veit að öllum líður bærilega, í sviga: vel. Áhyggjur
valda því að það kvarnar upp úr hamingjunni – (Sigurbjörg bendir á borð þar
sem hefur kvarnað upp úr) – þær skaða hamingjuna.
Hver er uppáhaldsliturinn þinn og blóm?
Blóðrauður á leiðinni út í vínrautt – litur sem maður ímyndar sér að sé
innan í manni. Og blóm … ætli það sé ekki tromptúlípani – útaf orðinu.
Uppáhaldsfugl?
Sennilega svanur. Ég hef samt skrifað talsvert um geirfuglinn.
Áttu þér listrænt manifestó?
Ég hafði einhvern tímann þessa viðmiðunarlínu: Það má finna en það er
bannað að leita.