Tímarit Máls og menningar - 01.10.2016, Blaðsíða 25
É g v e r ð a l l t a f s v o h i s s a
TMM 2016 · 3 25
túbera hárið fyrir Tónabæ, semja dans við nýjasta Wham-lagið og öfunda
stelpurnar í skólaferðalögunum af bláa maskaranum sem þær voru nýbúnar
að kaupa. Ég veit ekki hvort þetta risti djúpt eða hafði áhrif, þessi áratugur
er bara svo kostulegur, svo myndrænn og litríkur, öll form svo ýkt, og eftir-
minnilegur af þeim sökum. En ekkert sem breytti lífi manns.
Mundirðu vilja lýsa í fáum orðum fyrsta eina og hálfa áratug þessarar
aldar, hvernig tímabilið birtist þér á Íslandi?
Aldamótin urðu ekki eins stórkostleg og allir vonuðu og héldu. Þetta er að
mestu leyti sama bröltið. Auðvitað jók hringekjan dálítið hraðann á fyrstu
áratugum aldarinnar, þensla og almenn mikilmennska – ég man að þegar ég
var blaðamaður varð þetta okkur oft að yrkisefni, hvað svona hraðar lífstíls-
breytingar ættu eiginlega að þýða. Svo varð skipbrot sem lækkaði rostann í
okkur öllum, það var ágætt.
Ég á vin sem býr erlendis en hefur eytt lunganum af árinu hér, innan um
túristana og nýju kaffihúsin. Hann segir: Ég sakna eiginlega gömlu Reykja-
víkur, þegar allt var ömurlegt.
Mér finnst það fyndið, svona er lífið, frelsi, brandarar og glataður smekkur.
***
Þú ferðast mikið og dvelur langdvölum í útlöndum til að skrifa. Sækirðu í
áhrif frá stöðunum og/eða í einangrun frá heimahögunum?
Já, ég held að tilgangurinn sé einangrun frá öllu hér, svo seytla áhrifin
frá staðnum inn, en ekki endilega þessa stundina, heldur seinna. Sólar sögu
skrifaði ég ekki í Bologna þó hún gerðist þar, skrifaði hana á Grikklandi, svo
komu áhrifin þaðan fram í Túlípanafallhlífunum.
Ég ætla ekki að spyrja þig um áhrifavalda en áttu bók/bækur sem fylgja þér
á ferðalögunum? Eins og Chopin tók nótur Bachs með sér til Mallorca – ég
nefni Chopin afþví þú gafst mér eitt sinn hanska í afmælisgjöf.
Ég kaupi mér oft bækur á flugvöllum og þær verða förunautar mínir,
frekar en ég taki með mér bækur héðan, reyndar tók ég Íslenskan aðal með
mér til Berlínar síðast. Mér finnst skemmtilegra að lesa það sem er að gerast
á stöðunum sem ég kem til, eitthvað sem rímar við andrúmsloftið, einnig
dagblöð staðarins hafi ég aðgang að tungumálinu, þessi stóru dagblöð með
greinum sem manni finnst skipta máli.
***
Nú koma auðveldar spurningar: Hvert er uppáhaldsorðið þitt?
Þetta er erfiðasta spurningin hingað til! Þau eru mörg. Má ég skjóta inn
frá öðrum? Ég á þýska vinkonu sem talar íslensku en hún segir að ef hún ætti