Tímarit Máls og menningar - 01.10.2016, Blaðsíða 51
Í s l a n d p ó l e r a ð
TMM 2016 · 3 51
Nei, það er ekki í lagi með mig.
„Já, það er allt í lagi! Ókei?!“ gelti ég.
Hann lyftir brúnum. Nasavængirnir þenjast út. Hann lítur á mig með
einkennilegum svip. Hér er einhver óþefur. Hann snýr við án þess að segja
orð en hann kemst ekki langt og ég kemst heldur ekki undan því að plássið
bak við barinn er of lítið til þess. Hér, klesst á milli ísskápanna, vaskanna og
drykkjanna, erum við föst. Við finnum andardrátt hvort annars, við lesum
hugsanir hvort annars.
Óli. Ólafur. Ólafur Ari. Yfirþjónn hér. Samkynhneigði vinur minn sem
ég skrifta fyrir á leðinlegustu dögunum. Stundum kallar hann mig blíðlega
kaþólsku beljuna sína, Catholic cow. Ég ætti líkast til að kalla hann homma,
faggot, á móti, en ég geri það aldrei. Vangarnir á mér myndu brenna fyrst.
Póst-heteró og póst-kaþólsk. Hvílíkt par! Tveir tilfinningalegir útflytjendur
svo stoltir af því sem þeir skildu eftir.
Kurwa. Málmskóflan brakar ofan í plastfötunni með ísmolunum. Kurwa.
Kurwa. Kurwa. Ég brýt ísinn. Ég óska þess að ísmolarnir væru fullkomnir í
laginu, bara einu sinni í dag. Kaldranaleg ósamhverfa þeirra sker í eyru mín
þegar ég fylli vatnskönnurnar.
Fokk. Óli hreinsar kaffivélina. Fokk. Fokk. Fokk. Hann skellir greipinni í
brúnina á korgkassanum til að losa kaffikorginn sem er enn sjóðandi heitur.
Hann skvettir vatni í vaskinn og þurrkar hann svo með bómullartusku.
Þegar allt virðist hreint og snyrtilegt kemur hann aftan að mér:
„Svo þú ert hætt að þjóna Íslendingum, ha? Annaðhvort ertu löt eða með
afar litla sjálfsvirðingu.“
Síðan ýtir hann á takka á gömlu espressóvélinni til að þrýsta heitu vatni
út en það er líkami minn sem byrjar að nötra og vatnið fyllir augun í mér í
staðinn. Vélin ískrar. Gufan er föst inni.
Annaðhvort ertu löt eða með afar litla sjálfsvirðingu.
Ég hefði átt að segja þér
Ég er með brostið hjarta
Ég er með brostið stolt
Ég á höfundarréttinn að „Lost in Iceland“ vörumerkinu.
Og að ég hef lært nokkur ný orð hérna:
auðmýking stolts
vanmáttur
jafnréttiskröfur sem náðu ekki fram að ganga
og hvernig á að framkvæma Sex öndunaræfingar til að slaka á á tíu
mínútum eða minna.
Ein.
Tvær.
Þrjár.
Fjórar.
Fimm.
Sex.