Tímarit Máls og menningar - 01.10.2016, Page 20
K r i s t í n Ó m a r s d ó t t i r
20 TMM 2016 · 3
en ég veit
að hann lét eftir sig
bolta
undir pallinum
við húsið mitt
grænt gras
rautt hár
ég á litmyndir.
Já, það er alveg rétt, ljóðið fjallar um þennan sorgaratburð.
Á hvaða hljóðfæri lærðirðu?
Píanó í sjö ár en get bara spilað brúðarmarsinn eftir minni.
Hvað með íþróttirnar?
Það var fótbolti og badminton og danskeppnir í Tónabæ. Það var ævin-
týralegt að fara til Reykjavíkur í keppnisferðir, til dæmis með badminton-
liðinu, fórum með Akraborginni, ferjunni sem gekk á milli Akraness og
Reykjavíkur, borðuðum á Svörtu pönnunni eða Tomma hamborgurum. Ég
æfði ekki lengi fótbolta því ég var lítill bógur og hafði ekki styrk til að ýta frá
mér, en enn í dag horfi ég á, fylgist með.
Uppáhaldslið?
Skagamenn eru sjálfkrafa liðið manns, svo eru það Barcelona á Spáni,
Manchester United á Englandi og ítalska landsliðið, og allt á sínar ástæður:
ég held með Manchester útaf flugslysinu 1958 þegar meirihluti liðsins fórst,
en þá fór amma að halda með þeim; hún heldur með þeim sem eiga undir
högg að sækja og ég geri eins og amma. Svo bjó ég einu sinni í íbúðinni þinni,
manstu, í Barcelona og held síðan þá með Barcelona.
Manstu hver var fyrsta minning þín?
Já, ég hugsa að það sé flugeldaslysið. Svo man ég eftir að hafa skorið mig á
niðursuðudós í Munaðarnesi. Man maður ekki sársaukann en ljósmyndirnar
geyma góðu minningarnar?
***
Varstu snemma læs? Lastu mikið þegar þú varst lítil? Hver var uppáhalds-
bókin?
Ætli ég hafi ekki orðið læs fimm, sex ára og las býsna mikið, man mikið
eftir mér á bókasafninu. Ég las allar Enid Blyton bækurnar og las líka stráka-
bækurnar sem voru á öðrum stað í safninu, Frank og Jóa, Bonanza – fannst
þær æðislegar – og bækur um öll snjöllu dýrin, Fagri blakkur, Flipper – sem