Tímarit Máls og menningar - 01.10.2016, Page 30
K r i s t í n Ó m a r s d ó t t i r
30 TMM 2016 · 3
um miðjan janúar
stari ég
í skuggahlið tunglsins
sem innan tíðar
lýsir
upp nágrenið í stofunni
Bréf frá borg er eitt langt bréf og gerist í Buenos Aires. Hún er ólík Blysförum
– ég hef reynt að skrifa ekki sömu bókina tvisvar, mér þykir skemmtilegt að
breyta um tón eða form, keyra í eitthvað nýtt, jafnvel þótt það sé bara fyrir
mig sjálfa. Í Kátu skinni gerði ég tilraun með að hafa ólík ljóð saman, samt
svo þau passi í sama mengi.
Þú hefur líka skrifað leikrit.
Já, nokkur. Mér finnst gaman að skrifa samtöl, alveg geggjað, ég á nokkur
fleiri en þau sem hafa verið sýnd.
Nú í haust kemur út bókin Óttaslegni trompetleikarinn og aðrar sögur.
Segðu mér frá nýja verkinu.
Já, þetta eru örstuttar smásögur, eins konar leiftursögur, sem fjalla um
ýmislegt sorglegt og skondið, konur, karla og dýr. Ólíkar raddir segja
sögurnar, allt frá bitra móttökuritaranum til tvöfalda böskarans, og þótt þær
slái út í absúrd á köflum get ég sagt þér að sumar þeirra byggja á heilögum
sannindum. Hlutum sem hafa gerst. Það er svo margt magnað sem gerist.
Viltu gefa dæmi?
Ja, til dæmis brasilíska fegurðardrottningin sem missti alla útlimi sína,
fyrri hluti þeirrar sögu er alvörufrétt. Og Heinrich von Kleist, hann drap
bæði sig og Henríettu. Til dæmis.
Takk fyrir greinargóð svör, mín kæra Sigurbjörg.
***
Ertu hugrökk?
Á sumum sviðum, þá er furðanlegt hverju ég þori, öðrum sviðum ekki.
Viltu nefna sviðin?
Einhvern tímann í líffræðitíma, kannski tíu ára, þurftum við blóð til að
skoða undir smásjá, þá stakk ég mig í fingurinn og þótti lítið mál þó það
útheimti sársauka – verð stundum hissa eftirá þegar ég sýni sjálfri mér
óvæntan kjark. Mér finnst venjulegt að vera ein í ókunnugum húsum og
afskekktum sveitum en systir mín segist til dæmis aldrei geta gert það. En