Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.10.2016, Page 43

Tímarit Máls og menningar - 01.10.2016, Page 43
Pá fa s t ó l l i n n TMM 2016 · 3 43 Samt varð ég að gera þetta ef ég vildi eignast barn í framtíðinni, hversu sama sem mér var um barneignir núna. Ég hringdi í vin minn og mælti mér mót við hann á Kaffi París í mið- bænum, leiðinlegt kaffihús en með stóra glugga sem er gaman að horfa út um. Eitt sinn kom ég þar á hverjum morgni í tvo mánuði án þess að afgreiðslufólkið gæfi til kynna að það hefði séð mig áður, ég pantaði alltaf sama tvöfalda espressoinn en enginn spurði þetta venjulega? Ekki að það skipti mig máli en skrýtið samt. Meðan ég beið las ég á leiðbeiningarnar sem ég hafði fengið með mér heim. Eftir að sýnið var komið í dolluna var mikilvægt að skila því af sér á innan við klukkustund upp í Smáralind, og að hitinn á því héldist allan tímann nálægt líkamshita til að niðurstaðan yrði marktæk. Þetta um líkamshitann var undirstrikað. Mér varð hugsað til fyrsta sýnisins sem var tekið úr mér. Ég var nýgreindur með krabbamein í eistum af heimilislækni, var strax í kjölfarið sendur í sónar og svo með leigubíl upp á Landspítala þar sem jafnaldri minn – læknanemi – stakk puttum upp í rassinn á mér til að þreifa blöðruhálskirtilinn. Ég man þetta óljóst. Svo var ég kominn á ein- hverja deild þar sem hjúkrunarfræðingur veifaði rakvél úr plasti og spurði hvort ég vildi sjálfur raka mig milli fótanna eða hvort þau ættu að gera það í aðgerðinni? Ég sagðist vilja gera það sjálfur, tilhugsunin um að liggja rænu- laus í hópi grænklæddra manneskja að raka á mér klofið var óþægileg. Næst birtist plastdollan og ég var beðinn um sýni, þetta sama og hafði verið geymt í fljótandi vetni í öll þessi ár og var staðfest frjósamt: Ég, útgáfa 2000. Yrði það ekki, að einhverju leyti, gamaldags barn sem kæmi út úr svona gömlu sýni? Nýjar sáðfrumur urðu til daglega og hlutu þær þá ekki að endurspegla ástand líkamans hverju sinni? Mig langaði til að klára þetta, losna undan gamla sýninu, gamla mér og gömlum, slæmum minningum tímabilsins og fá staðfest að ég gæti enn eignast börn, jafnvel þótt ég myndi aldrei eignast þau. Börn slaga um heimtandi nammi, tala eintómt þvaður og minna á róna, nema kátari á svipinn, ég hef aldrei skilið aðdráttaraflið. Starkaður vinur minn birtist og við pöntuðum kaffi, gláptum út um gluggann á Íslendinga kjaga mót febrúarrokinu, reyna að gleyma því að þeir voru lokaðir inni á Rúmfatalager hnattarins. Ég festi ekki hugann við sam- ræðurnar og bað Starkað að afsaka mig, fór á klósettið og hafði dolluna með mér í innanávasa jakkans. Ég lokaði mig inni á þessum eina, pervisna bás sem er boðið upp á þarna í kjallaranum en vissi um leið að það gengi ekki. Þetta var í þriðja skiptið sem ég reyndi fyrir mér inni á klósetti, vonlaust og auk þess voru almenningsklósett staðir þar sem karlmenn áttu að fá það – ég hef heyrt fjölmargar sögur um það frá konum sem sjá um hreingerningar, hvort sem það er á Þjóðarbókhlöðunni eða lögreglustöðinni á Hlemmi. Ég fór aftur fram og gægðist inn í stórt herbergi sem ég hafði tekið eftir á leið niður stigann. Á miða við dyrnar kom fram að herbergið mætti leigja til
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.