Tímarit Máls og menningar - 01.10.2016, Page 71
Ú t l e g ð a r s t e f n æ r o g f j æ r : A r f u r L a u r u o g G u t t o r m s
TMM 2016 · 3 71
slóðum kvenna í þjóðbúningum meðan hann drakk kaffið og gæddi sér á
nýbakaðri marmaraköku á kyrrlátu síðdegi.3
Ljósmyndin sem vakti athygli gestsins var tekin á ljósmyndastofu ekki
langt frá Hellisgerði á sjöunda áratug tuttugustu aldar. Hvað sem segja má
um fjarveru karlkynsins í Firðinum á efni ljósmyndarinnar það sameigin-
legt með sumum ljósmyndum af íslenskum innflytjendum í Manitóba í lok
nítjándu aldar og upphafi þeirrar tuttugustu að birta sviðsetningu á veru-
stað og menningu: Meðan kynslóðirnar þrjár á Íslandi skarta hugmynd um
stílfærða fortíð, yfirgefa íslenskir innflytjendur sitt Nýja Ísland um stund og
hreiðra um sig í engilsaxneskri stemningu á ljósmyndastofu á Main Street í
Winnipeg, ekki langt frá hinu sögufræga Exchange-hverfi. Ekki einu sinni
skiltin í búðargluggum down town Winnipeg sem á stendur „Icelanders not
wanted“4 varpa skugga á augnablikið.
Með hliðsjón af stöðu og hlutskipti margra þeirra sem yfirgáfu gamla
landið á síðari hluta nítjándu aldar, má telja víst að um og eftir aldamótin
nítján hundruð búi íslenskir innflytjendur í Norður Ameríku yfir kær-
komnu frelsi í sviðsetningum á verustað. Ef marka má ýmsar heimildir, má
jafnframt gera ráð fyrir því að sami hópur innflytjenda búi yfir einhverju
frelsi í sviðsetningum á þeirri menningu sem hópurinn ferjar yfir hafið.
Þökk sé stigveldinu og margbrotinni útlegð í því sem ættingjar okkar og
fleiri Evrópubúar kalla nýjan heim, sígur veruleiki kringumstæðna eðlilega í
og seytlar einnig inn í margþætta mynd þeirra nútímabókmennta vestanhafs
sem kenndar eru við íslenska menningu.
Eins og verk þeirra Lauru og Guttorms gefa til kynna er ekkert klippt og
Ljósmynd frá Winnipeg 1888–89.
Hjónin eru Kristján Guðmundsson
(Goodman) og Jóna Magnúsdóttir frá
Dysjum í Garðahverfi, sem komu vestur
úr Hafnarfirði árið 1886. Ekki voru
liðin fleiri en tvö ár síðan þau settust
að í Winnipeg, þar sem Kristján gerðist
húsmálari. Myndin er úr safni Nelsons
Gerrard, Eyrarbakki Icelandic Heritage
Centre, Pioneer Photo Archive og er birt
með góðfúslegu leyfi hans.