Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.10.2016, Page 96

Tímarit Máls og menningar - 01.10.2016, Page 96
96 TMM 2016 · 3 H va ð e r í s l e n s k u r r i t h ö f u n d u r ? og ekkert hafi í skorist. Svo birtist hjúkrunarkonan, móðirin fer í sturtu og fær nudd og bóndinn fylgir Sóleyju niður að bakkanum á ánni sem rennur út eftir miðjum dalnum. Síðla dags, þegar þau sitja við eldhúsborðið og skræla epli, kemur sú gamla skjögrandi inn í eldhúsið eftir að hafa vaknað upp af löngum hádegisblundi. Hún heldur á umslagi, þrýstir því að brjósti sér. Hún dokar við. Bóndinn rís á fætur og gengur í átt til hennar. „Er allt í lagi með þig, mamma?“ spyr hann. „Alexandra kemur í dag,“ segir hún og er greinilega spennt. Bóndinn er að því kominn að leiðrétta móður sína, enda eru liðin tíu ár síðan Alexandra var borin til grafar, en móðir hans er fyrri til og afhendir honum bréfið. „Ég er svo hrædd um að ég missi af henni; kannski verð ég sofandi þegar hún kemur. Ég vil að þú fáir henni þetta bréf.“ Hún flissar eins og skólastelpa. Bóndinn tekur við bréfinu. Utan á umslaginu stendur skrifað, með kræklóttum stöfum: Til hennar Alexöndru minnar. Móðirin kinkar kolli einu sinni enn, svo gengur hún til stofu og sest í stólinn sinn. Feðginin horfast undrandi í augu. „Hver á að fá þetta bréf?“ spyr Sóley, en hún fær ekkert svar. Bóndinn lítur aftur á umslagið, snýr því milli fingra sér, réttir dóttur sinni það að lokum. „Taktu það. Hér eru væntanlega svörin við spurningunum þínum.“ Hann gengur á dyr, muldrar eitthvað um að hann þurfi að laga girðinguna uppi í hlíð áður en hann fari í fjósið, svo fer hann í vinnugallann og stígvélin. Hann tekur til vírtöng og gaddavír í skúrnum, baksar svo af stað upp hlíðina. Þegar ég var lítill drengur, benti mamma mér á þúfutittling, sem sat á þúfu líkt og hann sæti ofan á geirvörtu sjálfrar Móður náttúru. Hún sagði mér að fuglinn stæði oft þarna og stundum dritaði hann og þá safnaðist upp áburður sem myndaði smám saman stóran moldarhaug. Þannig yrðu fjöllin til, sagði hún og ég trúði hverju orði. Nú veit ég að fjöllin verða ekki til með þessum hætti, en ég hef ekki enn vikið frá mér tilhugsuninni. Sum ævintýri eru svo falleg að maður kýs að trúa þeim. Halló, lóan mín yndisleg! Vertu ekki hrædd. Reynir að lokka mig burt frá hreiðrinu, læst vera með brotinn væng, dregur hann með jörðinni og syngur þinn veiklulega söng, líkt og ég sé váboði. Það þýðir ekkert að vera með þessi látalæti við mig, ég veit vel að hreiðrið þitt er í seilingarfjarlægð. En þú mátt vita að ég yrði síðastur manna til þess að skaða þig eða ungana þína. Þegar ég heyri sönginn þinn í vetrar- lok, veit ég að vorið er í nánd. Þá hlýnar mér um hjartarætur. Og á haustin, þegar þú hverfur á braut – þá hefst sú langa bið.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.