Tímarit Máls og menningar - 01.10.2016, Page 143
U m s a g n i r u m b æ k u r
TMM 2016 · 3 143
hugsun að hann vildi fá meira að heyra,
kannske meira efni úr bréfum íslenskra
hermanna á vígvellinum, viðbætur við
þetta hljómmikla „Whiss-bang, whiss-
bang, whiss-bang“ sem einn þeirra
heyrði svo skýrt. Og svo saknaði ég þess
mjög að ekki skyldi meira fjallað um
hinn stórmerka kvæðabálk „Vígslóða“
eftir Stephan G. og deilurnar kringum
hann. Ekki væri vanþörf á að gefa hann
út aftur, helst með ítarlegum formála og
skýringum, því margt er um hann að
segja. Mér hefur t.d. dottið í hug að heiti
upphafskvæðisins „Ræfladans“ sé þýð-
ing Stephans á „ragtime“; ef sú tilgáta er
rétt kynni það að varpa nokkru ljósi á
kvæðið. En það er önnur saga. Þökkum
Gunnari Þór Bjarnasyni fyrir ágætt
verk.
Kápumynd er úr „Here, there and everywhere“-seríunni eftir Erlu S. Haraldsdóttur frá árinu 2001
þar sem hún ímyndaði sér Reykjavík sem stærri og fjölþjóðlegri borg en hún er nú þegar. Erla S.
Haraldsdóttir er menntaður listmálari sem notar málverk, hreyfimyndir, myndbandsverk og
klippimyndir til að nálgast og endurskapa veruleikann og kanna samspil minninga, tilfinninga og
sjónrænnar skynjunar. Hún hefur sýnt verk víða um heim, en býr nú og starfar í Berlín.