Gríma - 01.09.1948, Blaðsíða 22
20 ÞÁTTUR AF SÉRA ODDI Á MIKLABÆ [Gríma
þessu tímabili, en á henni hefur verið unnið það
skemmdarverk, að dálítið stykki hefur verið skorið úr
blaðinu, einmitt þar sem dánardægur Solveigar hefur
verið, og þá að sjálfsögðu nafn hennar og föðurnafn.
Einn greindur Skagfirðingur hefur getið þess til, að
séra Oddur hafi skrifað þar einhverja athugasemd eða
eitthvað það, sem vandamönnum hans hafi ekki verið
um að geymdist, og virðist mér tilgátan ekki ósenni-
leg. — Að því er eg bezt veit, hefur þess hvergi verið
getið, hvers dóttir Solveig var, og eg hef engan heyrt
nefna föðurnafn hennar, nema Hrólf gamla Einarsson,
sem áður getur, en hann mun hafa verið fæddur í
Sléttuhlíðinni skömmu eftir 1800. Hrólfur var skýr-
leiksmaður, minnugur og réttorður. Hvort sögn hans,
að hún væri Þorleifsdóttir, er rétt, skal eg ekki full-
yrða, en fróðlegt væri að grennslast um, hverjir hafa
borið Þorleifsnafn þar í Sléttuhlíðinni um það bil, er
líkindi eru til, að Solveig hafi fæðzt.
8. Bein Solveigar tekin upp.
Fyrra hluta ársins 1937 var talið, að Solveig hefði
gert nokkrum sinnum vart við sig á fundum spiritista
í Reykjavík. Það mun þó sérstaklega hafa verið hjá
einum miðli, að hennar varð vart. Lét hún í ljós þá
ósk, að bein sín yrðu tekin úr jörðu á Miklabæ og
færð að Glaumbæ. Séra Lárus Arnórsson á Miklabæ,
sem mikið var við upptöku beina hennar riðinn, — því
að bein hennar voru tekin upp og færð eins og hún bað
um sumarið 1937, — hefur skrifað um upptöku bein-
anna og flutning ágæta grein í Morgun 1937. Er grein
hans skrifuð af imannúðlegum skilningi og sarnúð í
garð Solveigar. Ritgerð séra Lárusar er hin ágætasta
heimild um upptöku beina Solveigar og færslu þeirra í