Gríma - 01.09.1948, Blaðsíða 61
Gríma] ÞJÓÐSÖGÚR 59
c. Skrímsli í Vesturhópsvatni.
[Handrit Þorsteins M. Jónssonar, eftir sögn úr Húnaþingi.]
Nokkru eftir l§6Q_ivar að Stóruborg í Víðidal Hall-
dór sonur Egils á Reykjum á Reykjabraut, Halldórs-
sonar prests að Melstað. Einn sumardag sat hann yfir
kvíám vestur undir Vesturhópsvatni. Sá hann þá
langt úti á vatninu eitthvað, sem hann í fyrstu hélt að
væri stór fugl, en þegar það færðist óðfluga nær hon-
um, kom það á daginn, að það var ekki fugl. heldur ein-
hver önnur skepna. Synti hún hratt að vatnsbakkanum
og gekk á land. Sá Halldór, að þetta var eitthvert ó-
kennilegt dýr á stærð við vetrung, en af þvíaðhannvarð
þegar smeykur, gaf hann sér ekki tíma til nánari at-
hugunar, heldur tók til fótanna og hljóp sem mest
hann mátti til bæjar. Elti dýrið hann lengi, en hann
komst undan þvi og var þó kominn að niðurfalli af
mæði, þá loks hann náði bænum. Var þá dýrið snúið
aftur til vatnsins og horfið.
Ymsar fleiri sögur herma frá því, að skrímsli hafi
sézt við Vesturhópsvatn. — Svo bar við fyrir löngu á
einum bænum við Hópið, að hryssa drapst, af því að
hún gat ekki kastað. Þegar hún var gerð til, kom inn-
an úr henni vanskapaður burður, hauslaus, með klóm
á öllum löppum, en búkurinn var líkastur því að lög-
un, sem tveim trogum væri hvolft saman. Töldu menn
líklegast, að skrímsli úr vatninu mundi hafa fyljað
hryssuna.
d. Skrímsli í Flatey.
[Handrit Theódórs Friðrikssonar rithöf. 1907. Sögn Flateyinga.]
Það bar við í Flatey á Skjálfanda haustið 1881,
nok'kru fyrir veturnætur, að piltar í Útibæ voru að
spila vist fram í skála að kvöldi til. Stúlkur voru inni