Gríma - 01.09.1948, Blaðsíða 46
44
SAGNIR UM JÓN HALLDÓRSSON [Grima
Síðar varð Snorri smiður mikill og kaupmaður á Ak-
ureyri, sem kunnugt er. Var hann athafnamaður í hví-
vetna, hygginn fjáraflamaður og naut mikils álits með-
al margra samtíðarmanna sinna.
5. Spáð fyrix Bergi á Hæringsstöðum.
Bergur hét bóndi, er bjó í Klaufabrekknakoti í Svarf-
aðardal. Hann var föðurafi Páls Bergssonar á Syðstabæ
í Hrísey fnú á Akureyri) og þeirra mörgu bræðra.
Það var einhverju sinni, að Bergur fór niður að sjó
og hafði þá Berg son sinn með sér. Var hann þá ungur
sveinn. Jón á Syðra-Hvarfi hittir þá feðga á Grundar-
bökkum. Segir Bergur bóndi þá við Jón: „Hverju spá-
ir þú, Jón, um þenna ungling?"
„Mæðulegur sýnist mér hann vera,“ segir Jón, „en
samt búa í honum miklir hæfileikar, og margir munu
gott af honum hljóta.“
Bergur Bergsson bjó síðar á Hæringsstöðum og var
hinn mesti gæðamaður, þolinmóður í hverri raun, en
átti oft andstætt. Hagur var hann í bezta lagi. Varð
hann því á þann hátt mörgum að liði. Bergur eignaðist
með konu sinni sjö sonu, er urðu hinir mannvænleg-
ustu, og lifa þeir allir að einum undanteknum.
6. Kirkjuferð Aðalbjargar.
Aðalbjörg hét húsfreyja á Krosshóli í Skíðadal. Hún
var kona Þorkels Magnússonar, er þar bjó. Einu sinni
reið Aðalbjörg til Vallakirkju að vorlagi. Reiddi hún
fósturbarn sitt, er átti Jón gullsmiður Bjarnason á
Kóngsstöðum.
Á heimleið kom hún að Syðra-Hvarfi, ásamt öðru
kirkjufólki, og stanzaði þar á hlaðinu. Jón kom út og
leit yfir fólkið. Víkur hann sér að Aðalbjörgu og segir: