Gríma - 01.09.1948, Side 37

Gríma - 01.09.1948, Side 37
35 Gríma] ÞÁTTUR AF KJARTANI í SELI Ekki veit eg fyrir víst, hve mörg sumur Kjartan gerði út til Seleyjar, en ekki munu þau hafa verið ýkja mörg, því að þegar hann fékk allt Eskifjarðarsel til ábúðar, jókst bú hans fljótlega, svo að þegar önnur störf bættust á hann, svo sem sendiferðir og fleira, varð hann að hætta sjósókn. 4. Kvonfang Kiartans og afkomendur. Árið 1871 kvæntist Kjartan Kristrúnu Jónsdóttur bónda að Eskifjarðarseli, Jónssonar bónda að Vöðlum, Andréssonar bónda frá Vopnafirði. — Kona Jóns Andr- éssonar var Kristín Jónsdóttir, þess er síðastur fórst í snjóflóði í Vaðlaskriðum. — Móðir Kristínar, en kona Jóns í Seli, var Solveig Þorleifsdóttir bónda á Karls- stöðum, Péturssonar bónda á Karlsskála. Allir bræður Solveigar voru kraftamenn miklir, sérstaklega Bjarni, er kallaður var sjóli. Þau Kristín og Kjartan eignuðust fimm börn, er náðu fullorðinsaldri, fjóra sonu og eina dóttur; eru allir afkomendur þeirra hið mesta myndarfólk. Mestan dugnað hefur Lárus, yngsti sonur þeirra, sýnt við jarða- bætur, því að hann hefur reist og ræktað ábúðarhæft ný- býli, þar sem áður voru óræktarmóar og melar. Kjartani tókst fljótlega að ná eignarrétti á ábúðar- jörð sinni, sem nú er orðin margbýlisjörð afkomenda hans. 5. Ferðalög og ratvísi. Á þeim árum, sem Kjartan byrjaði búskap, voru póstgöngur mjög ónógar um Austfirði, en þó einna mest ábótavant milli Eskifjarðar og Seyðisfjarðar. Þá urðu bréf og bögglar, sem sendast áttu milli þeirra staða, að liggja yfir póstferð á Egilsstöðum, en svarið við þeim á sama stað yfir næstu ferð. Þetta kom sér mjög 3*

x

Gríma

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gríma
https://timarit.is/publication/1422

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.