Blik - 01.04.1960, Page 15
B L I K
13
ur 1837—1842 incl., nær listinn
yfir alla eyjuna.“
Vissulega er ekki um auðug-
an garð að gresja, þegar leita
skal heimilda um fræðlu barna
og unglinga í Vestmannaeyjum
á fyrri hluta síðustu aldar.
Þegar litið er yfir húsvitj-
unarbækur Vestmannaeyjasókn-
ar frá þessu tímaskeiði, bregð-
ur manni í brún, þegar aðeins
nafn eins og eins barns ber þar
fyrir augu, en á mörgum bæj-
um er ekkert bam. Því veldur
hinn skæði barnasjúkdómur,
ginklofinn, sem geisaði í Eyjum
fram undir miðja síðustu öld
og hafði verið þar landlægur
öldum saman. (Sjá Blik 1957).
Til þess að gera lesendum
skiljanlegar þær hörmungar,
sem þessi skæði bamasjúkdóm-
ur olli foreldrum 1 Eyjum og
Eyjabúum í heild ,meðan hann
geisaði þar sem skæðast, er
rétt t.d. að skrá hér dánarár
nokkurra barna Bergs bónda
Brynjólfssonar, sem eignaðist
17 börn, svo sem um var getið
í Bliki 1958. (Traustir ættlið-
ir); eitt lifði og komst til
manns.
Árið 1793, 19. október, dó
Jóni Bergssotn Brynjólfssonar
og k. h. Sigríðar Jónsdóttur,
4 daga gamall. Árið 1796 dó
Margrét dóttir sömu hjóna,
fárra daga gömul. Árið eftir
(1797) eignuðust sömii hjón
annað stúlkubarn. Það var hið
bráðasta vatni ausið og skírt
Þuríður. Það lá liðið lík eftir
nokkra daga.
Sigríður Jónsdóttir, fyrri
kona Bergs Brynjólfssonar, dó
1798.
Árið 1800 eignaðist Bergur
Brynjólfsson barn með síðari
konu sinni, Guðfinnu Guð-
mundsdóttur. Var það skírt
Sigríður eftir fyrri konu hans.
Stúlkubam þetta dó 5 daga
gamalt. Árið 1801 eignuðust
sömu hjón sveinbarn, sem
skírt var Guðmundur. Hann dó
fárra daga gamall. Árið 1802
eignuðust sömu hjón annað
stúlkubarn, sem skírt var Þór-
dís. Dó rétt eftir fæðingu. Árið
1804 eignuðust sömu hjón
stúlkubarn, sem einnig var
skírt Þórdís. Dó eftir nokkra
daga. Þá eignuðust sömu hjón
sveinbam árið eftir (1805) og
var það skírt Jón. Það lá lið-
ið lík stuttu eftir fæðingu. Ár-
ið 1808 ól Guðfinna húsfreyja
enn stúlkubarn, sem skírt var
Guðrún. Það lifði aðeins fáa
daga. Árið 1810 eignuðust sömu
hjón enn sveinbarn. Var það
skírt Bergur í höfuðið á föður
sínum. Andaðist eftir fáa daga.
Árið 1812 eignuðust hjónin enn
stúlkubarn og vai' skírt Mar-
grét. Dó fárra daga gamalt.
Öllum þessum börnum Bergs
Brynjólfssonar varð ginklofinn
að bana.