Blik - 01.04.1960, Page 26
24
B L I K
kverum notuð hafa verið í
Vestmannaeyjum á hverjum
tíma, er mér ekki kunnugt um,
hefi ekki fundið heimildir um
það.
Séra Jón Jónsson Austmann
andaðist að Ofanleiti 14. ágúst
1858.
Embættistíð séra Brynjólís
Jónssonar
Með bréfi stiptyfirvaldanna
dags. 18. september 1852 var
séra Brynjólfur Jónsson prests
Bergssonar að Hofi í Álftafirði
skipaður aðstoðarprestur séra
Jóns J. Austmanns að Ofan-
leiti. Þá hafði séra Jón verið
heilsuveill um skeið, orðinn
aldraður og þreyttur með lang-
an starfsferil að baki. Um það
bil sem séra Brynjólfur Jóns-
son fluttist til Vestmannaeyja
tíl þess að gerast ábyrgur
kapelán hjá séra Jóni Aust-
mann, var bókaeign Eyjabúa
sem hér segir:
Eintök
Biblíur ...................... 36
Vídalínspostilla ............. 75
Passíusálmar ................. 27
Vigfúsarhugvekjur ............ 20
Sálmabókin nýja .............. 50
Sturmshugvekjur .............. 28
Flokkabókin (sálmabók 1746) 29
Grallarinn (sálmabók og nótur) 9
Gerhardshugvekjur ............ 14
Nýja testamentið ............. 14
Bænakver ..................... 22
Herslebs föstupredikanir .... 16
Fæðingarhugvekjur ............. 8
Sjöorðabókin ................. 10
Sveinbjarnarhugvekjur .......... 7
(Sveinbj. Hallgrímsson)
Harmonía evangelíum ............ 4
(samanburðarguðspjöllin)
Miðvikudagspredikanir .......... 5
Gíslapostilla .................. 1
(Gísli Þorláksson biskup)
Sigurljóð ...................... 1
Píslarþankar ................... 5
Mynsterspredikanir ............ 12
Árnapostilla ................... 3
(Séra Árni próf. Helgason)
Bjarnabænir .................... 3
Eintök guðsorðabóka alls .... 408
Árið 1853 voru 89 heimili í
Vestmannaeyjum, og þar
bjuggu þá 408 manns. Er þar
því eitt eintak bókar á mann
Passíusálmar eru til á þriðja
hverju heimili. Biblían er ekki
til á öðru hvoru heimili. En
yfir 84% heimilanna eiga Vída-
línspostillu.
Séra Brynjólfur settist að í
Nöjsomhed, hinum gamla kon-
unglega embættismannabústað
í Eyjum, í námunda við höfn-
ina. Þar bjó prestur síðan til
ársins 1860 að hann var skip-
aður sóknarprestur í Vest-
mannaeyjum (3. ágúst um sum-
ariðj og fluttist þá að Ofanleiti.
Á engan er hallað, þó að full-
yrt sé, að séra Brynjólfur
Jónsson sé einn allra merkasti
prestur, sem gegnt hefur prest-
skap í Vestmannaeyjum fyrr
og síðar. Segja má með sanni,
að hann fómaði Eyjabúum og
Eyjunum allri starfsorku sinni,
og þó sérstaklega síðari hluta