Blik - 01.04.1960, Síða 35
B L I K
33
þremenningamir beittu sér fyr-
ir stofnun lestrarfélagsins,
gekkst séra Brynjólfur fyrir
stofnun bindindisfélags í Vest-
mannaeyjum. Þar naut hann
stuðnings Bjama sýslumanns
og fleiri góðra manna, sem of-
bauð það ástand, sem þá rikti
í Eyjum á flestiun sviðum þess,
sem kallað er menningarlíf.
Bindindisfélagi sínu fórnaði
séra Brynjólfur mjög miklum
tíma og starfsorku, enda varð
honum mikið ágengt bæði um
það að draga úr áfengisneyzlu
drykkjumanna og annarra á-
fengisneytenda og varna því, að
æskulýðurinn félli í sama fenið.
Þegar séra Brynjólfur hafði
starfað í 9 ár að þessum bind-
indismálum skrifaði hann hina
frægu sóknarlýsingu sína. Þar
minnist hann á bindindisfélagið
og árangurinn af starfi þess.
Þar segir hann orðrétt:
„Drykkjuskapur hefur til
skamms tíma verið hér mjög
almennur, en að tiltölu við það,
sem áður var, eru hér nú mjög
fáir drykkjumenn. Er það án
efa því að þakka, að árið 1864
var hér á eyju stofnað Bindind-
isfélag, og lutu aðalreglur þess
að því að bindast fyrir alla
nautn áfengra drykkja og
styðja sem mest að eflingu bind-
wdis hér á eyju. Félag þetta,
sem í fyrstunni var fámennt,
hefur ár frá ári farið æ fjölg-
andi undir umsjón sóknarprests
svo sem formanns. Frá því fé-
lag þetta var stofnað, hafa alls
í það gengið hér um bil 100
manns, en nú eru félagar hér á
eyju milli 60 og 70 karlmenn.
Þar á meðal auk prests og sýslu-
manns, flestir hinir helztu
bændur og margir yngismenn,
og hefur félag þetta að miklu
leyti stöðvað drykkjuskap
þann, er hér var mjög almenn-
ur, og haft bætandi áhrif á
marga utanfélagsmenn. Með
vaxandi reglusemi hefur og
iðjusemi og manndáð aukizt, þó
að ekki verði á móti því borið,
að sumum verði stöðudrjúgt og
þá einnig verkfátt í og nærri
kaupmannabúðum, eins og víða
hér á landi mun eiga sér stað
við verzlunarstaði "
Þetta voru orð prestsins um
árangurinn af starfi hans og
bindindisfélagsins. Og þessu
bindindisstarfi hélt prestur á-
fram, meðan kraftar hans ent-
ust, öðrum þræði til verndar
barnaláni Eyjabúa og mörgum
æskumanni þar til varanlegrar
gæfu og blessunar.
Ekki hafði Bjarni sýsliunað-
ur dvalið nema nokkra mánuði
í Eyjum, er hann stofnaði einka-
skóla þar handa unglingum, og
mun hafa kennt þeim skrift,
reikning og sumum dönsku.
Eftir því sem bezt er vitað, mun
hann háfa innt það kennslustarf
af hendi endurgjaldslaust, af
einskærum áhuga á því að láta