Blik - 01.04.1960, Síða 40
38
B L I K
um stofnun barn&skóla hér á
eyju, sem er svo einkar nauð-
synlegur, gat ég þess um leið,
að hin svonefnda fæðingarstift-
un, sem nú hefur náð sínu
augnamiði, væri mjög hentugt
hús fyrir barnaskóla, hvað enn-
fremur nú má til greina, þar
sem nú getur fengizt til kaups
hús það, sem snikkari Markús-
son á, er nú er fluttur héðan til
Reykjavíkur, með því bæði hús
þessi, sem eru áföst, væru til
samans nægilega stór fyrir
barnaskólann og til íbúðar ó-
giftum kennara.
Með því ég nú þykist sann-
færður um, að barnaskóli muni
geta komizt hér á, ef stjórnin
skyldi styrkja stofnun þessa
með allt að 200 ríkisdala árlegu
framlagi, enda þótt Eyjabúar
yfir höfuð séu mjög efnalitlir,
og að ég með svo felldu móti
mundi geta áunnið það, að hús
snikkara Markússons með sam-
skotum efnaðra og héraðinu
velviljaðra manna mundi keypt
verða, sem þannig í sambandi
með fæðingarhúsinu, eins og
áður er á minnzt, væri nægilega
stórt í téðu augnamiði, vildi ég
leyfa mér að ráða frá því, að
lækninum að svo komnu máli
væri gefinn kostur á því að fá
hið svo nefnda fæðingarhús til
kaups, því enda þótt héraðs-
lækninum geti verið það áríð-
andi að fá hér íbúðarhús með
vægu verði, er Vestmannaeyja-
hreppi þó sannarlega meir á-
ríðandi að geta notið þeirra
framfara, er barnaskóli getur
veitt ungmennum eyjar þessar-
ar.“
Þorsteinn Jónsson læknir hélt
því hins vegar fram, að þing-
hús sveitarinnar yrði heppilegra
skólahús en Stiftelsið. Þar
mætti gera rúmgóða skólastofu.
Þessari þrætu var síðan skot-
ið til sveitarstjórnarinnar í
Vestmannaeyjum. Skyldi álit
hennar um það, hvort hún teldi
heppilegra skólahús þinghúsið
eða „fæðingarhúsið" (Land-
lyst), sent stiftamtmanni, áður
en hann tæki endanlega afstöðu
í málinu og felldi úrskurð.
Séra Brynjólfur Jónsson mun
nú hafa gengið á milli og reynt
að miðla málum, og sýslumaður
ekki talið það sigurvænlegt
skólamálinu að vera í andstöðu
við hinn áhrifaríka og velviljaða
sóknarprest. I október um
haustið (1868) skrifar sýslu-
maður stiftamtmanni bréf, þar
sem hann tjáir honum, að hann
fallist á, að þinghúsið verði val-
ið til skólahaldsins. Sýslumaður
segir þar: „Eftir að hafa íhugað
mál þetta, get ég eigi annað en
verið því samdóma, að þinghús-
ið mundi verða hæfilegra hús-
rúm fyrir hinn fyrirhugaða
barnaskóla en fæðingarhúsið,
bæði hvað rýmindi snertir, og að
það mundi eigi verða jafn kostn-
arsamt fyrir sveitina að gjöra