Blik - 01.04.1960, Page 57
B L I K
55
Þegar hér er komið sögu,
hafia, Norðmenn stundað síld-
veiðar fyrir Austfjörðum á
sumrum um margra ára skeið,
og sumir jafnvel búsett sig þar.
Þeir kenndu Austfirðingum að
veiða fisk á línu. Til þeirra veiða
þurfti mikla beitu og örugga
geymslu á henni. Sú tækni og
þau tök hlutu að lengja veiði-
tímann að miklum mun. Næg
og góð beita var, og er, undir-
staða fiskveiða með línu.
Austfirðingar fengu brátt
Isak Jónsson þangað austur til
þess að leiðbeina þeim um bygg-
ingu frosthúsa og geymslu á
snjó og ís yfir sumarmánuðina.
Á árunum 1894—1896 vann
síðan ísak Jónsson að því að
leiðbeina við byggingu frost-
húsa á Austur- og Norðurlandi
og hafa umsjón með fram-
kvæmdum þessum. Landsstjórn-
in viðurkenndi síðar þetta þjóð-
hagslega starf hans með því
að greiða honum úr landssjóði
500 krónur á ári fyrir umsjón
þessa og leiðbeiningar.
Árið 1896 höfðu a.m.k. 9 ís-
hús verið reist á Austfjörðum
og 3 á Norðurlandi. Á þessum
fjörðum eystra höfðu húsin
verið byggð: Eitt í Mjóafirði,
eitt í Norðfirði, þrjú við Seyð-
isfjörð, eitt í Vopnafirði, eitt í
Borgarfirði, eitt í Reyðarfirði
og eitt við Fáskrúðsfjörð.
Eyfirðingar og Húsvíkingar
urðu brautryðjendur á Norður-
Vigfús Jónsson, Holti.
landi í þessum efnum, því að
árið 1896 voru byggð tvö frost-
geymsluhús (íshús) við Eyja-
fjörð og eitt á Húsavík.
Þegar líða tók á síðasta tug
19. aldarinnar, sóttu Vest-
mannaeyingar í æ ríkari mæli
atvinnu sína til Austfjarða á
vorin og sumrin eins og aðrir
Sunnlendingar. Á Austfjörðum
gátu Eyjasjómenn sér mikinn
og góðan orðstír fyrir dugnað,
sjómennsku og aflasæld. Þeir
stunduðu þar fiskveiðar með
línu.
Vorið 1895 fóru þrír kunnir
Eyjasjómenn austur á Mjóa-
fjörð til fiskveiða. Það voru
þeir Magnús Guðmundsson,
bóndi og formaður að Vestur-
húsum, Vigfús Jónsson frá Túni