Blik - 01.04.1960, Page 60
58
B L I K
Grjóthrun óskaplegt í kippun-
um, og þess vegna lífshættu-
legt að draga sig til bjargar
í fjöll og úteyjar. Kringum-
stæður allar voru því lamandi
og drógu úr framtakshug og
kjarki.
Hugsjón skipstjórans og út-
gerðarmannsins, Sigurðar Sig-
urfinnssonar, að byggja íshús,
var því lögð á hilluna um sinn.
Rétt er að taka það fram,
að yfirgangur erlendra togara
á grunnmiðum við Eyjar hafði
sjaldan eða aldrei verið meiri
en á vetrarvertíðinni 1896 og
um vorið, og dró það mjög úr
aflaföngum Eyjabúa. Örvænt-
ing og kvíði um afkomu alla
vegna ágengni veiðiþjófanna
fór nú mjög í vöxt með Eyja-
mönnum. Ekki minnzt af þeim
sökum fór f jöldi þeirra til Aust-
fjarða í atvinnuleit vorið 1896,
svo að aðeins 2—5 jul gengu
til fiskjar endur og eins um
sumarið frá Eyjahöfn, að mestu
leyti mönnuð börnum og gam-
almennum.
Því aðeins hefi ég dvalið dá-
lítið við árið 1896. að ýmsir at-
burðir, er þá gerðust í Eyjum
og næstu ár á eftir, mörkuðu
spor fram á við í útgerðarsögu
Eyjamanna og knúðu m.a. fram
byggingu íshúss þar, þó að hug-
sjón sú ætti eftir að bíða þess
næstu fimm árin að rætast.
Haustið 1896, 13. september,
kom enskur línuveiðari inn á
Vík við Eyjar og lagðist í
grynnra lagi austur með Urð-
unum. Nafn línuveiðara þessa
var Thayetmyo og hét skip-
stjórinn G. Marks. Þegar leið á
kvöldið, gerði skarpan austan-
vind. Skipsmenn uggðu ekki að
sér og kl. 1 um nóttina rak
skipið upp í Urðirnar austur
af Miðhúsum og kom þar brátt
gat á það, svo að það fylltist
af sjó, og sökk að einhverju
leyti. Skipshöfnin bjargaðist
einhvern veginn í land á skips-
bátnum um nóttina. Undir
morgun kyrrði veðrið og örk-
uðu þá Eyjabúar til og reyndu
að bjarga því, sem bjargað
varð úr skipinu. Meðal þess,
sem bjargað var, var línan, sem
Eyjaskeggjar kræktu upp úr
lest skipsins með krókstjök-
um. Næsta dag var svo hald-
ið uppboð á öllu því, sem bjarg-
aðist úr skipinu, t.d. kolum,
fiski og svo veiðarfærunum.
Snærið keyptu ýmsir í Eyjrnn,
sjálfsagt sumir með þeirri hugs-
un, að „sjaldan er bagi að
bandi“, en allt var þetta selt
við lágu verði, enda var Þor-
steinn læknir þá settur sýslu-
maður, og hafði hann víst litla
löngun til — sá mæti maður •—
að hlunnfara Eyjabúa til hags-
bóta brezkum veiðiþjófum.
Skipið var ársgamalt og hafði
kostað 90 þúsundir króna. Það
seldist á 20 kr., skrifa tuttugu