Blik - 01.04.1960, Page 64
62
B L I K
Arni Filippusson, annar aðalfrumkvöðull
að stofnun ísfélags Vestmannaeyja og
fyrsti athafnasami formaður pess. F. 17.
marz 1856. D. 6. jan. 1952. Myndin mun
tekin fyrir aldamót
Forystumenn þessa máls voru
þeir Magnús Jónsson, sýslumað-
ur, og Árni Filippusson, verzl-
unarmaður, þá búandi á Vega-
mótum. Fundurinn var haldinn
i þinghúsi sveitarfélagsins.
Fundurinn var vel sóttur og
létu menn í ljós mikinn áhuga á
máli þessu. Fundarmenn vildu
þegar stofna til hlutafélags til
þess að hrinda hugmyndinni í
framkvæmd.
Eftir nokkrar umræður var
leitað með nafnakalli eftir því,
hve margir af fundarmönnum
vildu gerast hluthafar í slíku
félagi sem þessu. Þegar gáfu sig
fram 45 menn og hétu þegar
hlutafé samtals 1400,00 krón-
um.
Fundurinn kaus þegar 5
manna nefnd til þess að beita
sér fyrir stofnun félagsins,
kynna sér gerð íshúsa, hver
mundi hæfileg stærð þessa fyr-
irhugaða húss og kostnað við
bygginguna. Jafnframt skyldi
nefnd þessi semja frumvarp til
laga fyrir félagið. Kosningu
hlutu Magnús sýslumaður Jóns-
son, Sigurður Sigurfinnsson,
hreppstjóri, Gísli Lárusson, út-
gerðarmaður 1 Stakkagerði,
Magnús Guðmundsson bóndi og
formaður að Vesturhúsum, og
Árni Filippusson verzlunarmað-
ur, Vegamótum.
Nefndin tók nú ótrauð til
starfa og vann að málefninu eft-
ir beztu getu. En samgöngur við
Eyjar voru tregar og margt
gekk þess vegna seinna en
skyldi.
Undirbúningnum að stofn-
fundinum hafði hún lokið fyrir
nóvemberlok 1901 og boðaði til
stofnfundarins 1. desember.
Eyjabúar sýndu mikinn á-
huga á þessu máli, og mættu
flestallir þeir, sem setið höfðu
fundinn 15. sept., einnig á þess-
um fundi.
Undirbúningsnefndin lagði nú
fram á stofnfundinum frumvarp
til laga fyrir félagið, teikningu
af væntanlegu íshúsi og kostn-