Blik - 01.04.1960, Síða 74
72
B L I K
hafði því orðið að fórna því
mestu vinnuafli við öflun íss
og endurbóta á vegum í þágu
þess.
Á þessum aðalfundi var
stjórninni falið að festa kaup
á frosinni síld frá Reykjavík
til að geyma í íshúsinu til nota
síðari hluta vetrarins og vors-
ins, ef nógu margir útvegs-
menn æsktu þessara kaupa að
hennar dómi.
Tveir menn höfðu sótt um ís-
hússvarðarstöðuna, þeir Högni
Sigurðsson, sem þá bjó á Heiði
í skjóli föður síns, Sigurðar
Sigurfinnssonar hreppstjóra, og
Steinn Sigurðsson á Brekku,
síðar skólastjóri hér. Greidd
voru atkvæði um þessa menn
og hlaut Högni 44 atkvæði en
Steinn 23. Þá var lesið upp á
fundinum frumvarp að starfs-
samningi við Högna Sigurðs-
son, það var svohljóðandi:
Samkvæmt ályktun aðalfundar
„ísfélags Vestmannaeyja" hinn 15.
f.m. ræður stjórn félagsins Högna
bónda Sigurðsson á Heiði í þjón-
ustu þess frá fyrsta degi næst-
komandi sumars með skilmálum
þeim, er nú skal greina:
1) Hann skal hafa umsjón yfir
húseign og áhöldum félagsins og
vinna dyggilega að því, að þau
matvæli eða beita, sem félagið á
eða hefur til geymslu, varðveitist
í góðu ástandi í íshúsi þess.
2) Hann skal afgreiða viðskipta-
menn félagsins 1—2 klukkustundir
í hvort mál á virkum dögum og
1—2 klukkustundir á helgum dög-
um, þegar þess er þörf. Afgreiðslu-
tímann ákveður félagsstjórnin ná-
kvæmar með auglýsingu til al-
mennings í Vestmannaeyjum.
Þegar síldarafli er, skal hann þó
veita síld móttöku í íshúsið eftir
föngum á hverri stundu dags, sem
hún er á boðangi.
3) Hann skal með tilliti til 6.
greinar félagslaganna ráða menn
til ístöku og annarra starfa í íé-
lagsins þarfir, sem hann getur ekki
lokið einn á hentugum tíma.
4) í félagsins þarfir skal hann
nota og rita í þær bækur, sem nú
skal greina:
a) Aðalbók, sem rita skal í hvern
þann mann, sem að staðaldri
hefur viðskipti við félagið, á-
samt því, sem hann tekur út
og því, sem hann leggur inn,
hvorttveggja með viðsettu verði.
b) Kassabók, er í skal rita þær
peningaupphæðir, sem hann fé-
lagsins vegna tekur á móti eða
lætur af hendi, hvort heldur
peningagreiðslan áhrærir gjald-
kera félagsins eða aðra við-
skiptamenn þess. Upphæðir
þær, sem vegna smávegis lausa-
kaupa greiðast inn eða út, þarf
þó ekki að færa í kassabókina
hverja út af fyrir sig heldur
daglega aðalupphæð þeirra.
c) Vinnubók, sem rita skal í, nöfn
þeirra manna, er vinna í þarf-
ir félagsins.kaup þeirra og að
hverju unnið er.
Bækur þessar skal hann ætíð
hafa til taks, þegar félagsstjórnin
heimtar þær til endurskoðunar eða
annars.
5 Hann skal með tilliti til 5.
greinar félagslaganna annast kaup
og sölu á matvælum þeim og beitu,
sem félagið verzlar með og haga
verðlagi á því eftir kringumstæð-
um og í samráði við félagsstjórn-
ina.
Viðskiptamönnum félagsins skal
hann láta í té viðskiptareikninga,
þegar þess er þörf, og vinna ötul-